Kirkjuritið - 01.06.1977, Page 24
og þakka próföstum, prestum og sókn-
arfólki samveru í kirkjum og á heim-
ilum.
Lútherskt heimsþing
Nýlega er lokið allsherjarþingi Lút-
herska Heimssambandsins, hinu 6. í
röð slíkra þinga. Það var háð í Dar
es Salaam í Tansaníu dagana 13.—26.
júní, skipað 800 fulltrúum 95 kirkna,
sem samanlagt hafa 54 millj. skírða
meðlimi. Af hálfu íslensku kirkjunnar
sátu þingið sr. Bernharður Guðmunds-
son, sem enn er starfandi í Afríku á
vegum lúthersku útvarpsstöðvarinnar,
sem herstjórnin í Eþíópíu hefur lagt
hald á, og sr. Þorvaldur Karl Helga-
son, æskulýðsfulltrúi. Mun hann flytja
útvarpserindi um þingið.
Lokaorð
Hér liggja fyrir skýrslur eins og
endranær, sem mjög fylla út í þá
mynd, sem takmarkað yfirlit dregur
upp. Á ég þar ekki aðeins við hinar
venjulegu messu- og starfsskýrslur,
sem vissulega eru áhugaverðar, þó að
þær veiti aðeins yfirborðslega innsýn
inn í starfsemi kirkjunnar í heild. Héi'
eru og skýrslur söngmálastjóra og urn-
sjónarmanns kirkjugarða. Enn fremuf
greinargerðir frá nefndum, sem starf®
að tilhlutan prestastefnunnar. UpP'
eldis- og menntamálanefnd hefur
starfað í nokkur ár og til mikilla nytja-
Sálgæslunefnd var kosin í fyrra a
prestastefnu og hefur unnið vel.
Auk þess er svo skýrsla æskulýðS'
starfsins og loks efnismikil skýrsl3
frá Hjálparstofnun kirkjunnar, en enð'
inn getur gengið þess dulinn, að
starfsemi, sem kirkjan hefur tekið upP
með þá stofnun að tæki, er verðm#*
og tímabær nýjung. Ég þakka Þa®
ágæta starf, sem þar er unnið. Og
þakka nefndunum, sem hafa starf^
ötullega að þeim verkefnum, sem þeríT1
voru falin.
Síðast en ekki síst nefni ég starfs'
háttanefnd í þessu sambandi. AH*
hennar er sér í flokki enda er það lað’
fram hér sem dagskrármál þessarar
prestastefnu. Nefndin hefur starfað a
mikilli kostgæfni og álit hennar verð'
ur vafalaust grundvöllur fyrir frjórrl
umræðu á komandi árum og gaðn
legum ákvörðunum.
Heilir til starfa á prestastefnu 19^’
sem hér með er sett í nafni Guð5,
föður og sonar og heilags anda. Am®n
102