Kirkjuritið - 01.06.1977, Side 26
m. a. fjallað um trúarleg Ijóð og lög
og fagna ég því.
Það er lofsvert framtak að stofna
til þessara norrænu kristnu menning-
ardaga. Að þeir eru nú haldnir hér
úti á íslandi gleður okkur heimamenn
sannarlega. Ljóst er af dagskránni að
hér verður víða við komið enda er af
mörgu að taka og margir mætir menn
til kvaddir að reifa mál.
Mörgum þeim, sem nú eru um miðj-
an aldur eða eldri, vex nokkuð í aug-
um, að þeirra dómi síaukinn hraði á
mörgum sviðum mannlífsins. — Stríð-
ur flaumur hrífur gjarnan með sér og
færir í kaf eitt og annað, sem eftirsjá
er að. Við þúsund ára kristni hafa
Norðurlandaþjóðirnar byggt upp eigi
fátt í löggjöf, í félagslífi og í umgengn-
isháttum, sem við viljum fyrir enga
muni að glatist.
Ég vona einlæglega að norrænir
kristnir menningardagar glæði skiln-
ing á mikilvægi kristninnar fram á
þennan dag, þoki okkur saman t'1
varnar því besta, sem þjóðir okkar hafa
áunnið sér á þessum sviðum og verð'
hvöt til sóknar til eflingar kristnum
viðhorfum heima og heiman.
Ég býð sérstaklega velkomna ef'
lenda gesti. Við heimamenn vonum a®
þeir eigi góða daga meðan þeir dvelj'
ast hér á landi.
Ég vil nota þetta tækifæri tii a®
þakka samstarf frænda og vina a
Norðurlöndum og hjálpsemi í okkar
garð. Nefni ég ógleymanleg atvik eias
og viðbrögð þeirra á tímum eldanna
miklu í Vestmannaeyjum og aðsto8
við endurreisn Skálholtsstaðar.
Hafið heila þökk!
Að svo mæltu lýsi ég því yfir, $
þetta mót, „norrænir kristnir menH'
ingardagar", er sett.
Síra Jakob Einarsson
Síra Jakob Einarsson, fyrrverandi prófastur á Hofi í Vopnafirði andaðist
í sumar. Hans hefði að réttu lagi átt að minnast í þessu hefti Kirkjurits,
en grein um hann varð síðbúin og bíður næsta heftis.