Kirkjuritið - 01.06.1977, Page 52

Kirkjuritið - 01.06.1977, Page 52
BIBLÍUHANDBÓKIN ÞÍN Herbert Sundemo. Bókina þýddi Síra Magnús Guðjónsson. Formálsorð ritar biskup íslands, dr. theol. Sigurbjörn Einarsson. Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf. 1974. Bibiíuhandbók þessi er upprunalega gefin út í Svíþjóð árið 1970. Getur þýðandi þess í eftirmáia að margar slíkar handbækur séu á boðstólum er- iendis. Þetta er mála sannast, en hér- lendis hefir ekki verið hægt að fá biblíuhandbækur fyrr en nú. Líklegt er að fáir útgefendur telji útgáfu slíkra bóka gróðaveg nú um stundir. Því frem- ur eiga þeir, sem unnið hafa að út- komu þessarar bókar, þakkir skyldar, þýðandinn síra Magnús Guðjónsson og útgefendur. Nú er mörgum íslenzkum lesenduf1 Biblíunnar gjört fært að lesa hana með meiri skilningi og á vandaðri hátt, e° þeim var áður unnt. Bókin er ekki mikil að vöxtum, e<] furðumiklu hefir þar verið komið fyr,r af skýringum á hugtökum, skýringum ^ orðum og táknmyndum, kortum, e<' tölum, línuritum, myndum, ívitnunuh1 og stuttri inngangsfræði rita. Bókih skiptist í 50 þætti og meir en 1200 upP' sláttarorð í stafrófsröð, sem vísa ril annarra orða. Ýmsir hafa fundið til vöntunar 3 slíkri bók, ekki sízt kennarar, se<fl kenna biblíusögur og kristindóP1, Biblíuhandbók þessi ætti að vera þe,<]] mjög að skapi og leysa margan vanóa þeirra. Á sama hátt verður hún að mi^11 gagni í biblíuleshringjum og öll^ öðrum, sem vanda viija lestur sinn 3 Biblíunni. Þýðandinn hefirvandað ver sitt og frágangur bókarinnar virð|S með ágætum. A. J- 130

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.