Kirkjuritið - 01.06.1977, Blaðsíða 58
Lög um Skálholtsskóla
Forseti íslands gjörir kunnugt: Al-
þingi hefur fallist á lög þessi og ég
staðfest þau með samþykki mínu:
1. gr.
í Skálholti starfar skóli, er heyrir undir
menntamálaráðuneytið. Nefnist hann
Skálholtsskóli.
2. gr.
Skálholtsskóli starfar í anda norrænna
lýðháskóla. Markmið hans er að stuðla
að aukinni almennri menntun og
þroska nemenda sinna og dýpka skiln-
ing þeirra á félags- og menningarlífi
samtíðarinnar.
Skólinn vinnur að varðveislu þjóð-
legrar menningarafleiðar íslendinga.
Skólinn starfar á grundvelli kristinnar
kirkju.
3. gr.
Árlegur starfstími skólans er níu mán-
uðir. Heimilt er að skipta starfstíman-
um í námskeið. Hluti skólastarfs getur
farið fram að sumri.
4. gr.
Starfsemi skólans greinist í:
a) Almenna deild.
Almenna deildin veitir almenna
framhaldsmenntun þeim, sem að
loknu skyldunámi eða litlu síðar
hafa horfið úr skóla, en vilja taka
þráðinn upp að nýju.
b) Valfrjálsar deildir.
Skólinn býður nemendum ýtarlegri
fræðslu eftir frjálsu vali. í því skyni
starfa við hlið almennrar deildar
minni deildir, þar sem nemendur
einbeita sér að tilteknum flokkum
námsgreina, þar á meðal íslenskri
tungu, sögu og bókmenntum, kristf'
um fræðum og almennum trúai"
bragðafræðum, hugmynda- °9
heimspekisögu, nútímasögu og f®'
lagsfræði, svo og leiðbeiningai11
um æskulýðsstörf og aðra félags'
starfsemi.
Nemendur hinnar almennu deildsí
stunda nám í a. m. k. einni va1'
frjálsri deild. Að öðru leyti eru va1'
frjálsar deildir miðaðar við þarfr
þeirra nemenda, sem lengra erlJ
komnir á námsbraut og sitja í öH'
um kennslustundum í almenn11
deild, en eru að búa sig undir freK'
ara nám eða ákveðin störf.
c) Sjálfsnám og rannsóknarstörf.
Skólinn veitir árlega, eftir því sen1
aðstæður leyfa, viðtöku konum
körlum, er dvelja um lengri
skemmri tíma á staðnum og þigðJ3
að vild þá fræðslu sem þar er 1
boði, en stunda að öðru leyti sjálf5
nám og vinna að eigin verkefnar11
Skipulag alls náms og starfs í skó1
anum er með frjálsu sniði að h#*11
norrænna lýðháskóla. Próf eru enð
in, en vitnisburðir gefnir þeim, e'
þess æskja.
5- 9r- j,
Skilyrði fyrir skólavist er, að nemen
ur verði 18 ára á skólaárinu, nema e^'
séu, og hafi lokið skyldunámi. Rek*0^
getur veitt undanþágu og skólanef°
sett nánari reglur um inntöku nemen°
f samráði við rektor. ef ástæða þykir 1
6- gr. r
Skálholtsskóli er sjálfseignarstofn ^
og ber kirkjuráð ébyrgð ó fjárreið^^1
136