Kirkjuritið - 01.06.1977, Page 64

Kirkjuritið - 01.06.1977, Page 64
vorum aðstæðum. Hliðstæður eru greinilegar þrátt fyrir ýmsar breyt- ingar. Margt af því, sem nú hefur verið rakið, hefur gefið góða raun, þ. e. náð þeim tilgangi, sem til var ætlazt. Sumt hefur ekki verið notað nema á ein- staka stað og enn annað ekki að stað- aldri. En ýmislegt hefur úrkynjast þannig, að það hefur hætt að þjóna að mestu því höfuðmarkmiði, sem því var í upphafi ætlað. Það hefur m. ö. o. glatað að mestu tengslum sínum við drottin kirkjunnar. Til er það einnig, að starfsemin hefur aldrei náð tilgangi sínum, nema að mjög takmörkuðu leyti. Til þess geta legið ýmsar ástæð- ur, sem ekki verða raktar hér, nema tvær. Annars vegar mun ástæðan vera sú, að menn hafa ekki horfzt í augu við aðstæðurnar, lögmál verlaldarinn- ar, hugsunarhátt hennar og neyð. Hins vegar er ástæðan sú, að mönnum hef- ur ekki verið Ijóst, hvað kirkjan er í raun og veru, hvaða hlutverki henni er ætlað að gegna. Þetta fer oft sam- an. Hin nýja kirkjulega starfsemi gefur í fyrra tilfellinu ekki raunhæft svar við aðstæðunum, af því að hún hefur ekki viðurkennt þær og mætir þar af leið- andi ekki fólkinu, þar sem það stendur í andlegum efnum, félagslegu tilliti eða landfræðilegu, heldur reynir að finna það, þar sem menn vildu að það væri. Þannig verður söfnuðurinn, þ. e. sá hluti hans, sem telur sig ábyrgan, lítil innilokuð klíka. Þar með er útilokað, að erindinu, sem söfnuðinum hefur verið trúað fyrir af drottni sínum, verði skilað. í síðara tilfellinu flytur hin kirkjulega starfsemi ekki raunverulegt kall Guðs til mannanna eða svar hans 142 við neyð þeirra, þótt hún geti verið mjög fullkomin í allri starfstækni fá' lagsstarfsemi nútímans. Það er til, að hin kirkjulega starfsemi finni tilganð sinn í sjálfri sér, verði svo upptekin af sjálfri sér, að hún gleymi þjónusW' hlutverkinu í þágu Guðs mönnum hjálpræðis og verði aðeins mannð' fóstur við hlið annarrar almennrar félagsstarfsemi nútímans (sbr KatÞ' leen Bliss í Signs of Renewal, bls- 5). Það, sem hér hefur verið sað1, vekur þegar spurninguna: Hvað e< kirkja og kirkjulegt? II. Hvað er kirkja og kirkjulegt? Vér viljum nú leitast við að svars þessum spurningum, en fyrst vekj3 athygli á rótgrónum misskilningi. Það er ekki til nein algild starfsað' ferð, sem leysir vandamál kirkjunnar á íslandi í dag. Það liggur í eðli málsj ins. Hvorki kirkjan né viðfangselrl hennar eru ópersónulegt ástand múgur, sem nóg er að beita tækni mætti áróðurs eða valdi hins félað5 lega embættis að hætti þjóðhöfðinði3 og stjórnmálamanna. Hvort tveg91" eru mikilvægir þættir, sem taka verðar tillit til í þjóðfélagi nútímans, en Þe" einir leiða ekki til þess, sem á ma Nýja testamentisins kallast kristin kirkja. Vér lifum á tímum félaga, samtak3 og flokka, sem búayfir mikilli áróðare tækni og valdi hennar, mætti samta anna og peninganna og menn |a.g kenna á valdi sínu. Þessir hafa oð við af einræðisherrum fyrri alda aðli þeirra. Á öllum öldum hefur by90 t

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.