Jörð - 01.08.1942, Side 37
í GAMLA DAGA
Guðmundur Eggerz:
Breiðafjarðarheimili fyrir 50 árum
> Frli.
ISKÍRNI 1919 skrifar vinur minn, Sigurður Guðmunds-
son skólameistari, um Jón Thoroddsen og segir afdrátl-
arlaust og svo ákveðið, að hver skilur, að Friðrik Eggerz
liafi verið nákvæm fyrirmynd Sigvalda prests í „Manni og'
konu“- ,
Ummæli lians að þessu lútandi vil ég leyfa mér að taka hér
l‘PP, en áður vil ég þó taka fram um afa minn það, er nú
skal greina:
I • Það er kunnugt, að hatursmenn afa míns fengu Gísla
Iíonráðsson til að skrifa þvætting og skammir um þá
feðga, síra Eggert á Ballará og sira Friðrik. Þó segir Gísli
þetta um útför langafa míns: „Mun vart á síðari öldum
stórmannlegar verið að gengið en að erfi þessu. Stóð fyrir
því síra Friðrik, sonur sira Eggerts.“
-• Sighvatur Grimsson Borgfirðingur, sem skrifar greinina
i Sunnanfara, tekur fram um afa minn, eins og ég hef
áður til vitnað: „Hann var gáfumaður mikill og afarfróð-
u r að fornu og nýju, einkum í sögu íslands, lögum og
réttarfari.“
I handritaskrá Landshókasafsins er fjöldi handrita eftir
afa minn og um eill þeirra stendur svo í Þjóðvinafélags-
ahnanakinu frá 1932: „Bók mikil, 956 þéttskrifaðar blað-
síður, og varðveitt nú í handritasafni Landsbókasafns-
ins nr. 2005, 4to. Gyllt á kjöl.“ Tekið er þar fram, að öll
handrit afa mins séu með afbrigðum falleg að skrift og
írágangi. Enn skal ég taka fram í þessu sambandi, að ég
dvaldi sumarið 1898 í Reykjavík, og afhenti föðursvstir
mín, kona Jóns Péturssonar hávfirdómara mér þá stóra
eikarkistu járnbenta, með þeim ummælum, að afi minn
befði ánafnað mér hana. Kistan var troðfull af hréfa-
JÓRÐ
103