Jörð - 01.08.1942, Qupperneq 48
Frú X:
Á KVENNAÞINGI
RABARBARI
TV"T Ú FER aö verða hver seinastur, að draga aö sér rabarbara lil
vetrarins. Algengt er aö geyma rabarbara á flöskum, þánnig,
að hann er skorinn í smábita, látinn á flöskurnar, og þær svo
fylltar af vatni. En þetta er seinleg aöferð, bæði að troöa l)itun-
um j flöskurnar, og þá ekki síður að ná þeim úr aftur.
Fljótlegra er að sjóða rabarbarabitana í örlitlu vatni, þangáð
til þeir eru koinnir í mauk. Þá má hella maukinu úr könnu í flösk-
urnar. (iellophan-pappír er svo bundinn yfir stútinn. Þetta mauk
geymist ágætlega, þó að enginn sykur sé í því, og er fyrirtak í
grauta, blandað sætri bláberjasaft.
En þó að við hugsum um vetrarforðann, megum við ekki gleyma
að nota rabarbarann i daglegar máltiðir. En það er bara, að sykur-
skammturinn endist ilia, af þvi ekki er fljótlegt að venja fólk af
að hrúga sykri út á rabarbaragraut. Hér fara á eftir 2 uppskriftir,
þar sem húsmóðirin getur sjálf ráðið sykureyðslunni.
Rabarbarakaka.
'pwEIGlÐ: T4 kg. hveiti, Vt kg. smjörl., Vi peli rjómi, VA tesk.
lyftiduft. Þessu er hnoðað saman, flatt út nokkuð þykkt, skor-
ið undan stórum diski eða fati eftir því, hvað kakan á að vera stór.
Bakað í vel heitum öfni.
Rabarbarinn er skorinn í bita og soðlnn í sykurlegi, þar til er
bitarnir eru meyrir, en þess gætt, að suðan sé hæg, svo að þeir
fari ekki í sundur, og ekki látið nema litið af þeim ofan í pottinn
í einu. Þegar rabarbarinn er soðinn, er sykurlögurinn jafnaður
með ofurlitlu kartöflu- eða sagómjöli; það má ekki vera svo mikið
af honum, að bitarnir fljóti. Hvað mikinn sykur þarf, fer eftir
því, hvað rabarbarinn er súr og safamikill; í vínrabarbara þarf
minni sykur en aðrar súrari tegundir. Skreytt með þeyttum rjóma. —-
Þetta sama deig er lika fyrirtak í smákökur; t. d. búa til úr því
hringi, sem eru penslaðir með eggjahvitu eða rjómablandi og dyf-
ið í sykur og möndlur eða kókósmjöl; þó eru þeir ennþá betri,
sé þeim dyfið í rifinn ost; bezt, að hann sé orðinn dálítið garnall.
Niðursoðinn rabarbari.
í MÓTI hverju kg. af niðurskormun rabarbara, þarf V± kg. syk-
ur og V± líter af vatni.
Siðan er lokið látið á, en gæta verður þess vandlega, að enginn
174 jörð