Jörð - 01.10.1943, Blaðsíða 28
manna í Norður-ísafjarðarsýslu, og heldur ekki nema að
litlu leyti á ísafirði. Þetta breyttist þó mikið síðustu árin.
Aftur voru Heimastjórnarmenn all-fjölmennir í Vestur-
ísafjarðarsýslu, og átti blaðið þar marga velunnara fyrstu
árin.
Eftir kosningasigur Ilannesar Hafsteins liaustið 1900,
töldu ýmsir úti í frá honum vísa kosningu vorið 1902. En
þá fóru leikar svo, að Hannes féll fyrir síra Sigurði með
nær 100 atkv. mun. Skúli Th. fékk 235 alls, séra Sigurður
230, Hannes Hafstein 137 og Matth. Ólafsson 118 atkv.*
Þessi kosningaósigur Hannesar Hafsteins veikli mjög að-
stöðu „Vestra“ i Isafjarðarsýslu. Við kosningarnar árið
eftir sigraði Hannes Ilafstein, eins og kunnugt er, í Eyja-
fjarðarsýslu. ísafjarðarsýslu Iiafði verið skipt i tvö kjör-
dæmi á aukaþinginu 1902, og har Jóhannes Ólafsson sig-
ur af liólmi i Vestursýslunni með miklum atkvæðamun
yfir 'sirá Sigurð í Vigur.
Greinar „Vestra“ þessi árin lúta mest að kosningunum
og flokkapólitíkinni. Allmikið er þar um ádeilugreinar,
aðallega til „Þjóðviljans“ og Skúla.** Eru sumar þeirra
* í grein, er nefnist „Kosningaúrslitin í ísafjarðasýslum" segir
„Ves.tri“ m. a.: „Almenna undrun, óhugð og hryggð hljóta kosn-
ingaúrslitin hér í kjördæminu að vekja um allt land .... enda
var það almennt viðurkennt, jafnt af mótstöðumönnum lians [Haf-
steins] sem öðrum, að hann mundi hafa langmest fylgi ])ingmanna-
efnanna......Mikla óhugð hlýtur að setja að hverjum góðum dreng
að hugsa til þess, að fégjafir, lygar og alls konar ófögnuður skuli
óstraffað geta gengið ljósum logum .... enda er öllum ljóst, að
þessi úrslit voru ekki einleikin. — Og almenna hryggð hljóta
úrslitin að vekja .... sérstaklega yfir því, að til skuli vera kjós-
endur, sem eru þannig sem dáleiddir af einstökum mönnum, að
þeir láta þá fá sig til hvers sem er .... mót eigin sannfæringu.
Þáttur ísafjarðarkjördæmis var lengi framan af fegursti þáttur-
inn í sögu stjórnarskrárbaráttu íslands, en þessi síðasta opna er
svo svört, að það er eins og steypt hafi verið yfir hana úr fulln
byttu af bleki.“
** í 44. tbl. er grein, sem heitir „Skúli segir til sín.“ í henni
er m. a. þetta: „Eins og getið var um i síðasta Ijlaði, kom hinn
góðgjarni, friðelskandi og sáttfúsi „framfaramaður" og frelsispost-
280 jörð