Jörð - 01.10.1943, Qupperneq 34
skipti um eigendur. Urðu þar með köflum snarpar snerr-
ur milli Idaðanna, oft í sambandi við bankamálið, en
einnig út af bæjarmálum ísafjarðar. „Vestri“ var fyrst
í stað nokkurú efnismeiri hjá ritnefndinni en áður, og
er þar nokkuð meira af greinum um atvinnumál. Lárus
Thorarensen skrifaði ritdóma og þýddi sögur. Af rit-
nefndarmönnunum mun Hannes Jónsson liafa lagt til
mest efni. Ábyrgðarmaðurinn skipti sér ekkert af efni
blaðsins og skrifaði þar nálega ekkert. Þegar kom fram
á árið 1910, var ritnefndin oft ekki viðlátin, þegar hand-
rit vantaði. Ivom þá oft til kasta ritsl'jóra, að sjá blaðinu
fyrir efni. Ýmsir aðrir urðu og þá til að hlaupa i skarðið.
Við næstu árgangamót, í Nóvember 1910, lét útgáfufé-
lag „Vestra“, blaðið af bendi til þeirra Kr. H. Jónssonar,
Arngríms Bjarnasonar, IJannesar Jónssonar og Kristjáns
Jónssonar frá Garðsstöðum. Gerðist Kristján frá Garðs-
stöðum þá ábyrgðarmaður blaðsins og tók að sér af-
greiðslu þess, ásamt innheimtu áskriftargjaldanna. Hafði
liann skrifað nokkuð í „Vestra“, er hann var á vegum
ritnefndarinnar. Prentsmiðjan tók að sér prentun blaðs-
ins og lagði jafnframt til í það pappír, fyrir auglýsinga-
tekjurnar. Á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar gaf „Vestri“
út sérstakt minningarblað. Var það prentað í „Guten-
berg“, og skrifaði Þorvaldur prófaslur Jónsson aðalminn-
ingargreinina um J. S., en Giiðmundur Magnússon skáld
sá um útgáfu þess.
Við alþingiskosningarnar um baustið 1911, var Krist-
ján H. Jónsson í kjöri á ísafirði af liálfu Heimastjórnar-
flokksins, en síra Sigurður í Vigur, fráfarandi þingmað-
ur, fyrir annan hluta Sjálfslæðisflokksins, er nefnt var
Sparkliðið, og Sigfús H. Bjarnason, fyrrv. ræðismaður,
fyrir fjdgismenn Björns Jónssonar. Sigraði síra Sigurður
þá með einungis 4 atkv. mun yfir Kristján. Heimastjórn-
armenn unnu í þessum kosningum Vestur-ísafjarðar- og
Strandasýslu, er þeir höfðu tapað 1908.
í ársbyrjun 1912 tók Kr. IJ. Jónsson aftur við ritstjórn
„Vestra“, en meðútgefendur lians voru þeir áfram, Arngr.
286 jörd