Jörð - 01.10.1943, Side 90

Jörð - 01.10.1943, Side 90
ckki við, að þér víkið ósjaldan, beint og óbeint, að „þroskaleysi“ þeirra, sem aðhyllast ekki yðar skoðanir. Þó verð ég að játa, að mér skilst, að frá yðar sjónarmiði muni sá tónn réttmætur og því á stundum jafnvel skyldugur. En jafnframt álít ég, að þér verðið að vera við því búinn, að krókur komi á móti bragði af hálfu þeirra, er telja slíkt vanmat á sér. — Og algerlega hafið þér mis- skilið mig, er þér álítið, að ég liafi verið að hæðast að því, er þér nefnið Brunton nokkurn „spámann“. Mér var alvara, er ég komst svo að orði, að líklega bæri hann það nafn með réttu, — þó að játa verði ég, að lielzt til lítið hafði ég fyrir mér, til að styðja þá athugasemd við — sem sé aðeins hin djúpviturlegu um- mæli hans, er þér, hr. Gr. F., vitnið (að mér finnst: seinheppilega) til í „Ganglera“-grein yðar, máli yðar til stuðnings. Þér segið, að það sé „að sjálfsögðu ekki fullkomlega heiðarleg aðfer.ð“ að „rífa einstakar setningar út úr samhengi“ til að hyggja gagnrýni á og teljið mig beila yður þeirri aðferð. Ég hafði ekki nema mjög takmarkað rúm til umráða, og gat ekki tekið upp langa kafla úr greinum yðar. Ég varð að tjalda þvi, sem til var, og ég veit ekki betur, en að ég liafi náð tilgangi mínum, án þess að gera yður teljandi órétt: að vara við villum og veilum í framsetningu yðar (miðað við kirkjulegt sjónarmið og heilbrigða skynsemi). Þér eruð nfl. það mikill áhrifamaður, hr. Gr. F., að slíkt má ekki fara milli mála. — Þér teljið það „framför“ hjá mér, er ég í umræddri grein tala um „föður-líkinguna, — en það gerði ég, með áherzlu m. a. s., þegar i fyrstu grein minni um þessi efni (sbr. JÖRÐ III, 2., bls. 191) og hef alltaf haldið þvi áfram siðan — enda er mér það löngu rótgróin skoðun. Þér spyrjið mig, hr. Gr. F., „hvaða sannleikur sé æðri en sann- leikurinn um einingu alls lífs“. Því mælti kannski svara fyrst með því að henda á, að á öllum tímum mun það hafa verið vefengdur „sannleikur", og því varla unnt að tala um þá hugmynd i almennri umræðu á þenna hátl. Hitt skal ég viðurkenna, að ég lief sjálfur flutt trúna á „einingu alls lífs“ í ræðu og riti og flutt hana fagn- andi. En ekki liirði ég um að fara að „raða“ hinum æðstu trúar- sannindum eftir „einkunn“, og lái mér hver sem vill. Og ég held, að það sé misskilningur, að ég hafi hæðst að þvi, sem þér teljið „hæsta sannleik“, þó að ég fyndi ekki ástæðu til að taka öll ummæli yðar, notandi þau orð, hátíðlega. Hafi ég hins vegar með orðum mínum meitt það, er sízt skyldi, biðst ég hér með velvirðingar. Þér spyrjið, hvort það sé álit mitt, að nútímamenn megi enga eiginskoðun hafa á frumspekilegum efnum, og skal þvi skjótt svar- að, að ég álít það einmitt heilaga skyldu, eftir ástæðum hvers eins. Hitt er sannfæring mín, að óliáð eiginleit leiði beint til hans, er 342 jörð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Jörð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jörð
https://timarit.is/publication/467

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.