Jörð - 01.10.1943, Page 96

Jörð - 01.10.1943, Page 96
baki að höfðingja sinum, Lénharði; er það heldur hæpin fram- koma á þvi höfðingjavalds-tímabili, þó aldrei nema Eysteinn væri höfðingjadjarfur maður. Freysteinn hallar drykkjarilátinu, er hann drekkur, undir eins svo mikið, að mestallur drykkurinn hef'ði hlot- ið að fara niður — nema verið væri að gefa i skyn, að Guðný hafi verið efni í búkonu af litilsigldara tagi — sem ekki þarf að ætla. Guðný stingur höfðinu inn fyrir ársalinn á rekkjunni í fyrsta sinn, sem hún hlerar, livort Lénharður sofi, en það var of áhættusamt að byrja með því, úr því að liún þurfti eftir það að hlera aftur og aftur, hvort hann væri vel sofnaður. Leikend- urnir sýna ekki alltaf eðlileg viðbrögð, þegar eitthvað gerist. Tök- um t. d. þegar Eysteinn hopar skyndilega nokkuð langt inn á gólf úr dyrunum í bardaganum: þá er Guðný „i rólegheitum“ að tala við Lénharð, án þess að henni bregði nokkuð, fyrr en helzt dá- lítið seinna. Eða tökum dæmi af Helgu, þegar Ingólfur bóndi skýr- ir Torfa í Ivlofa frá ódæðisverkum Lénharðs og manna lians. Þegar hann byrjar á síðasta og versta þætti frásagnar sinnar með svæsnum inngangsorðum, þá verður þess ekki vart í neinni svip- breytingu, ekki í blæ augnaráðsins einu sinni, ekki i minnstu hreyf- ingu, að það snerti þessa skapstóru og fínu höfðingskonu neitt sérstaklega — og var þó ]>egar augljóst, að þar var komið að smánun kvenna. Viðbragð Helgu, i framsetningu Þóru Borg Ein- arsson, kemur eftir dúk og disk, eins og hún skilji ekki fyrr en skellur í tönnunum. Það eru að visu ekki stór viðbrögð, sem eiga við í tilfellum sem þessum, sem nú liafa verið tekin lil dæmis. Og almenningur leikhúsgesta tekur varla eftir því, hvort þau, hvert fyrir sig, eru látin undir höfuð leggjast eða framkvæmd. En lieild- aráhrifin byggjast þó, þegar til kernur, að ekki óverulegu leyti á þessum „ósýnilegu“ viðbrögðum, — þvi án þeirra er leikurinn ekki fyllilega eðlilegur, ekki fyllilega lífrænn, — og það finnur fólkið, þó að það geri sér ekki grein fyrir hinum einstöku at- riðum þeirrar tilfinningar. Ofanskráðar athugasemdir eiga alls ekki að skiljast sem last um þá leikendur, sem nefndir hafa verið, og lieldur ekki um leikstjór- aiin, þvi að höf. þessara lina þorir ekkert að fullyrða um, að smá- gallar af þessu tagi fari fram hjá Haraldi fremur en liinum leikstjórunum. — í sambandi við þetta er rétt að geta þess, að „statistar" voru færri en skyldi, og að sérstök nauðsyn bar til, að hver einstakur þeirra væri gæddur nokkrum persónuleika sem bóndi af belra tagi, einmitt af þvi að þeir voru svo fáir. Eins og var, veitti það ekki fullgilda „illusion“ að sjá þenna samtining sem nokkurs konar fulltrúaráð alþýðu manna við hlið Torfa. 1 þessu sambandi er líka rétt að benda á, hve illa ])að fer með „illu- sionina" að sýna hús svo litil, sem vant er að vera á leiksviðinu 348 Jöbð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jörð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jörð
https://timarit.is/publication/467

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.