Jörð - 01.12.1943, Page 37
síður en ytra borðs. Hins vegar skorti þá smekkvísi, eins
og bezt kom fram i því, hversu þeir földu afrek verk-
fræði sinnar á bak við íburðarmikla og stórfellda skreyt-
ingu.
Miðaldirnar þreifuðu og fálmuðu fyrir sér lengi vél um
tjáningu sinna andlegu liugsjóna, en náðu svo fullri fram-
rás í liinum undursamlega Gotneska stíl 13. aldarinnar. Á
Endurlifnunartímabilinu endurlifnaði meðal annara fornra
verðmæta byggingarstill Grikkja og Rómverja, og er orðið
endurlifnun einmitt réttari lýsing, á byggingarlist þess tima.
heldur en „eftirlíking“, gagnstætt því sem oftast er, þegar
svipað stendur á. Fornstíllinn var lagaður í kendi eftir þörf-
um tímans, svo að í raun réttri var skapaður nýr stíll. Sama
má segja um þann stuðning, seni Barokk-byggingarlist 17.
aldarinnar liafði af fornstilnum. En hún notaði liann á al-
veg nýjan og mjög áhrifamikinn hátt, til að tjá hinar sterku
trúartilfinningar og víkkandi heimsmynd þeirrar aldar. Hins
vegar á 17. öldin jafnframt upptökin að annari nýjung á sviði
listanna, sem alla tíð siðan hefur sveigt þær undir vald sitt
þeim til tjóns — það er „akademiska“ sjónarmiðið. Og það
var einn maður, sem kom svona vendilega fótunum undlr
það — Loðvík 14. Frakklandskonungur.
Loðvík var svo sanntrúaður á einveldið, að hann liélt, að
unnt væri að hugsa út kerfi, sem væru fullkomin og ævar-
andi; við slík kerfi ætlaði hann að tengja nafn sitt um ald-
ur og ævi. Eðlileg þróun var hugmynd, sem aldrei rank-
aði að honum, — liann vissi ekki hetur en að stofnsetja
mætti reglukerfi í liagskipuninni, stjórnskipuninni, list-
greinunum, er í eitt skipti fyrir öll aðgreindi gott frá
pu. Undir hans stjórn voru stofnaðir háskólar fyrir mál-
aralist, liöggmyndun, byggingarlist, bókmenntir, — háskól-
ar, sem fyrst og fremst átlu að setja þau lögmál, er ekki
mætti ganga i berhögg vð og væru þess eðlis, að væri þeim
rétt beitt, yrði útkoman fullgild list.
Þetta var nú sjónarmið, sem aldrei liafði áður ríkt í list-
sögu Norðurálfunnar. Til þess að finna annað eins, verður
að leita aftur i tímann um þúsundir ára, alla leið til Egypta-
Jörð 385
25*