Nýjar kvöldvökur - 01.12.1906, Page 14

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1906, Page 14
12 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Hann gekk inn í öndina. Dyravörðurinn kom til hans, og spurði hann erinda. Honum flaug alt í einu nokkuð í hug. Pað varð að vera —hann var fastráðinn í því. Ef hiín hefði mannlegt lijarta, yrði hún að bæn- heyra hann. Hafði hún ekki horft á hann meðaumkunarfullum augum í gær? í gær hafði hann skammast sín— í dag ætlaði liann að segja henni frá öllu saman, eins og það var, liver svo sem hún væri. Ef til vill mundi hún Iíkna honum. Hann ætlaði ekki að biðja um neitt —nema hundinn— bara fáeina daga, ef það gæti orðið svo ; ef til vill fengju þeir þá að deyja satnan— og yfir þeim dauðu hafa þeir Iifandi mist réttindi sín. Hann spurði hvar ungfrú Agata Móralt byggi. «Á neðsta Iofti». Hann gekk upp breitt riðþakið ábreiðum, og hringdi. Stúlka tók opna hurðina. Hvað vildi hann? «Tala við náðuga ungfrúna.» «Rað er nú ekki hægt». «Því þá ekki?» «Af því að náðug ungfrúin ferðaðist burtu í gærkveldi ogkemurekki svo fljótt aftur. Hún fékk vírskeyti um að koma til frænda síns, sem liggur við dauðann.» Max Odrigh fölnaði við; það var skipbrot fyrir hann. «Og Cæsar?» spurði hann, »Hvar er Cæsar. ?» «Cæsar?» spurði stúlkan hissa, «eg veit ekkert hvað það er». «Það er hundurinn minn — hundur;hin náðuga ungfrú keypti hann af mér í gær.» < Nú, já, þér meinið hann Zeppa, hann er hér eftir.» Max Odrich létti. «Gæti eg ekki fengið að sjá hann.» «Nei, það má eg ekki gera.» «En þjónninn, liann leyfir mér það; hann þekkir mig; er hann ekki heitna ?» • Hann fór með náðugri ungfrúnni; hún vildi ekki taka hundinn með sér af því að hún var honurn svo ókunnug. En rnér er stranglega bannað að láta hann komast út — eða láta nokkurn koma inn ti! hans.» — Ungi málarinn var sem þrumulostinn. Síð- ustu vonirnar lians voru strandaðar. Hvað átti hann nú að segja ? Stúlkan hafði aðeins opnað hurðina í hálfa gátt, eins og hún væri hrædd við það ef gest- urinn liti inn fyrir Nú kvaddi hún hann stuttlega og lét aftur hurðina. Max slamraðist ofan riðið og út. Rauna- mælir hans var nú fulhnældur; liann sá úr- slitinn fyrir augum sér; bara að hann þyrfti ekki að deyja svona einn. Hann vissi ekkert hvert halda skyldi. Alt- af dróst hann að strætinu — að húsinu. Til hvers svo sem ? Það vissi hann ekki sjálfur. En liann beið — og beið — og beið — og skeytti hvorki hungri né þorsta. Undir kvöldið hrökk hann saman við skark- ala. Fólk flyktist saman; björtum glampa sló upp úr næsta húsi við, og sló honurn fram á strætið. Neistum þeytti hátt í loft upp, og rigndi þar yfir hann. í næsta turni fór að glamra í klukkutn, óp, arg og óhljóð fyltu strætið. Max Odrich hugsaði ekki um neitt annað en hann Cæsar sinn. Ef eitthvað yrði nú að hundinum! Hann var lokaður inni! Ef hann gleymdist nú í þessum ósköpunt sern á gengu, og næsta húsið brynni. Hann ruddist í gegn- um mannþröngina að húsdyrunum. Að inn- an heyrði hann hlaup, sköll og hurðaskelli. Einhver mannsmynd þaut fram hjá honum. Það var stúlkan, sem hann liafði talað við um morg- uninn. Hann ætlaði að spyrja hana, en i fát- inu og ósköpunum tók hún ekki eftir honum, en þaut fram í mannþyrpinguna á strætinu, og hvarf þegar. Á eftir henni kom einhver þjótandi löng- un, þungum stökkum — ofan riðið. «Cæsar»! braust sem fagnaðaróp upp frá brjósti málarans.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.