Nýjar kvöldvökur - 01.12.1906, Side 16

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1906, Side 16
14 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. an af að vita, hvað hann segði, og spurði hann hvað hann væri kaupandi fyrir, og sagði hvað eg hefði gefið fyrir hann. Hann ætlaði ekki að trúa mér, og sagði að hann væri í minsta lagi 100 marka (90 ki.) virði. Rað er því auðséð, að þér hafið annaðhvorí ekki vitað, hvers virði hundurinn er, eða þá selt mér hann með af- föllum með ásettu ráði. Rér getið skilið, að eg get ekki þegið það. Pess vegna sendi eg yður nú, það sem eg þykist skulda yður.» — Max Odrich sneri við blaðinu. Innan úr bréfinu datt 100 marka seðill. Hinum megin stóðu þessi orð: «Reiðist mér ekki, ef þér kynnuð ekki að vilja taka á móti þessu, Rað er ekki nema skylda mín, og eg vil ófúslega skulda neinum neitt. Ef þér viljið ekki nota peningana sjálfur, skul- uð þér verja þeim í þarfir þeirrar fögru Iistar, sem þér leggið stund á, og eg elska. Með mestn virðingu Agata Móra!t». Málarinn horfði steinhissa á þessar línur. Eftir litla hríð lét hann bréfið síga niður á borðið, tók báðum höndum fyrir andlit sér og grét beisklega. Pað var eins og glóandi kol- um væri hlaðið að höfði honum; hann gat ekki velt þeimfrásér, hendur hans voru bund- nar. Hún hafði gert honum gott um leið og hann stal frá henni. Hvað átti hann nú til bragðs að taka. Ein vitleysan annari verri rak aðra í höfði hans. Framh. H etj an h e n n ar. «Pessi maður er hetja», mælti Aðalheiður Forrest um leið og hún spratt á fætur úr hægindastólnum og reikaði hrifin fram og aft- ur um gólfið með morgunblaðið í hendinni. «Við hvern áttu, Aðalheiður?» spurði bróðir hennar, og fylgdi systur sinni með aug- unum. «Við hann, sem hætti svo nijög lífi sínu í gær við að bjarga 4 kvenmönnunum út úr eldinum mikla. Nafn slíkra manna á að vera ódauðlegt. Hefði eg verið ein af þeim 4 mundi eg hafa beðið hans». «En ef þær allar 4 hefðu gjört það, mundi manntetrið hafa komist í ljótu vandræðin», sagði bróðirinn. «Já, slíkur maður væri eigandi* svaraði Aðalheiður. «En hann er nú þegar giftur» sagði bróð- irinn, um Ieið og hann leit á blaðið. Aðalheiður varð hugsi. «Eg held enginn þeirra ungu manna, sem eg hefi kýnst sé nein hetja. Pessir sídansandi og reykjandi uppskafning- ar, sem menn kynnast í heimboðum og skemti- samkomum eru úr öðrum tóskap en hinn hug- prúði og djarfi maður, sem þó ekki er nema fátækur múrari. Hann einn þorði að brjótast gegn um bálið. Þýtur sem snæljós upp stig- ann og bjargar konunum úr heljargreipum elds- ins. Eg vildi að hann væri kominn hingað, svo eg gæti þakkað honum fyrir þetta kær- Ieiksríka hreystiverk». Bennie virti systur sína fyrir sér litla stund og segir síðan: «Þetta getur nú ef til vill lagast*. Aðalheiður staðnæmdist frammi fyrir hon- um og horfði fast á hann, hún var fríð sýn- um, há og vel vaxin og í allri framgöngu hin fyrirmannlegasta. «Líklega hefir þú litla hugmynd um“ mælti hún, «hvað það er, sem konan metur mest og dáist að hjá manninum, eða hvað það er að vera sönn hetja». Bennie roðnaði lítið eitt en svaraði engu.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.