Nýjar kvöldvökur - 01.12.1906, Side 17

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1906, Side 17
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 15 xRrótturinn, hugrekkið og snarræðið er það, sem konan dáist mest að hjá manni þeim, ;r hún elskar, An þessara eiginlegleika stend- ur hann henni jafnfætis, og hæpið jafnvel, að hann geti haldið sér þar til lengdar og lendi eigi skör lægra". A þessum þrem eiginlegleikum, sem Að- alheiður nefndi, bar þá fremur lítið hjá bróð- ur hennar; hann var snoturt ungmenni, hafði allan hugann á veðreiðum og skemtunum, og var fremur óráðssamur í peningasökum. Þó hafði hann náð hylli og Iofast hinni töfra- fríðu ungfrú, Lovísu Daníel, Og þótt Bennie stæði á sarna hvaða skoðanir systir hans hafði um eitt eða annað, flaug honum nú. í hug, hvort unnusta sín myndi líta eins á þetta mál, og honum féll illa ef svo væri. Aðalheiður virtist lesa í huga hans, því hún sagði hlægjandi um leið og hún yfirgaf herbergið: «Allar konur hugsa eins í þessu efni». Lengri urðu eigi viðræðurnar milli syst- kinanna að þessu sinni, en Bennie gat eigi gleymt þeim þann daginn. Rær voru mjög til vina Aðalheiður og Lovísa, og systir hans hafði mikil áhrif á unnustuna, og þess vegna var hætt við að hún smeigði inn hjá henni leinhverju af sinni ofsalegu hetjudýrkun. Hon- lum geðjaðist illa að hlátri Aðalheiðar um leið og hún lauk samtalinu. Skollinn mátti vita nema hún með frekju færi að sannfæra Lovísu um það, að luraiegur múrari, sem með svið- ið -hár og skegg hefði bjargað 4 konum úr eldi, væri ailra manna aðdáunarverðastur. Þess- ,ar hugsanir fyltu hann gremju og þykkju til systur sinnar. Endirinn á þessu grufli Bennie varð sá, að hann einsetti sér að leika á Aðalheiði, 0g um leið sýna henni, að hann hvorki væri rag- ur né huglaus, þegar því væri að skifta. Um kvöldið hitti hann Jak Lemon á veit- ingahúsinu og skýrði honum ffá fyrirætlun sinni. Jak var hans bezti vinur, en ekkert voru þeir þó líkir. Jak var fullar þrjár álnir á hæð, hraustur og vel vaxinn, góðlyndur og hug- djarfur og lét sér ekki alt fyrir brjósti brenna, og allra manna rólegastur, þótt í óvæniegar kringumstæður kæmist, Bennie hafði oftar en einu sinni hjálpað honum í vandræðum, og Jak vildi gjarnan geta endurgoldið honum það. Hann hlustaði með athygli á ráðabrugg Bennie, og þegar hann hafði lokið máli sínu sat Jak þegjandi um hríð og horfði út um gluggann, en segir síðan: «Þetta er nú raunar hægt að gjöra, það einasta, sem eg sé athugavert, er, ef litla ung- frúin kynni að deyja af hræðslu eða missa vitið». ,Litla ungfrúin* át Bennie eftir. «Rú ættir bara að sjá hana, hún er nær því eins há og þú og eftir því sterk og ófyrirleitin, hún Iætur eigi einn né neinn skjóta sér skelk í bringu, það máttu vera óhræddur um“. «Kann hún að skjóta», spurði Jak. „Að vísu“, svaraði Bennie, «en hún hefir enga skammbyssu. Eg hefi öll skotfæri, sem til eru í húsinu í mínu herbergi». Svo þessu er þannig varið; annars hugs- aði eg að hún systir þín mundi lík þér, en hefurðu hugsað um, hvernig fara mundi ef lögreglan skærist í leikinn». „Ójá, eg hefi hugsað um alt. Peninga skápurinn, þar sem gimsteinaskrínið er geymt er í iusta herberginu. Eg sé um að lykillinn standi í, og þá er auðvelt fyrir þig að ná skríninu utn leið og eg kem hlaupandi. Síð- að stekkurðu upp stigann yfir ganginn og inn á herbergi mitt, sem er til vinstri handar. Eg hleyp auðvitað á eftir; þú felur þig í klæða- skápnum og setur skrínið á gólfið, eg næ skrín- inu um leið og hendist að opnum glugg- anurn og læt tvö skammbyssuskot ríða af út í tnyrkrið, eins og þú hefðir stokkið út uni gluggann. pannig verður augljóst að ræning- inn hefir flúið ofan björgunarstigann, en eg

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.