Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Síða 19

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Síða 19
STARFANDI STÚLKUR 161 ekki dansað við Ruth. Var það ef til vill af sömu ástæðu, að Ruth hafði notað heimskulega orðið „stórfínn“? Hann sneri sér við til að líta á eftir henni. En þau sátu þegar við borðið og skáluðu í kampavíni. Rétt á eftir, er hann og hans dama höfðu setzt niður, gaf hann þjóninum merki að koma. „Eina Cliquot, þakk.“ Eitt ár af ævi minni fyrir að vita nú hugsanir Ruth! -----Hugsanir Ruth voru ekki svo mik- ils virði. Hún var nefnilega blátt áfram hugsanatóm. Hún var eintóm tilfinning. Fann það svo átakanlega, að kvöldið það arna var eitt hinna allra verstu, sem hún hafði lifað. Rönning skyldi samt ekki verða þess var og um fram allt Árni ekki heldur. Hún dansaði, spjallaði, drakk og borðaði alveg eins og í vímu. Ef aðeins daman hans Árna hefði ekki verið svona sæt. Hver skyldi það vera? Ef til vill bernskuvinkona hans, Sissí. Bara það væri svo, en hún hélt það samt ekki, því að hann virtist vera svo ástfanginn, og það hafði hann aldrei verið í Sissí. Að minnsta kosti ekki síðan hann var fjórtán ára, það hafði hann sagt henni sjálfur. Nei, þetta var að verða alveg óbærilegt. Var klukkan ekki bráðum eitt? Árni og hans dama stóðu upp, það var fararsnið á þeim. Hann lét hana ganga á undan, nú voru þau í þann veginn að fara fram hjá hennar borði. Hún sneri sér fljótt að Rönning: „Æ, segið ekki að það sé bráðum kom- inn tími til að fara! Tíminn hefir flogið!“ Jæja, henni finnst tíminn hafa flogið, hugsaði Lindgren með sér, hann hneigði sig kurteislega um leið og hann fór fram hjá. Rönning leit sem allra snöggvast hissa á hana. Hún roðnaði. „Þér lituð út eins og þér ætluðuð að segja það,“ sagði hún til skýringar. „Jæja,“ tautaði hann og horfði hugsi á eftir Lindgren og hans dömu. Skömmu seinna fóru þau líka. Er þau skildu, voru þau sammála um, að þetta hefði verið skemmtilegt kvöld. Þau myndu líklega hittast bráðum aft- ur. Já, en hún ætlaði að fara heim til sín núna um hríð, að minnsta kosti í þrjár vikur. O, hafði hún ekki nefnt, að hún ætlaði að taka sér frí eftir nokkra daga! Já, hún ætlaði það líka, og hún gat vel látið það eftir sér núna, hún hafði bæði Tit og Aggí í búðinni. * Fyrri part næsta dags gerði Ruth báðar vinkonur sínar hissa, er hún sagði þeim frá hinni fyrirhuguðu ferð sinni. „Ég er svo þakklát af því að þú treystir okkur svo vel,“ sagði Tit og varð alveg viðkvæm við tilhugsunina. „Auðvitað treysti ég ykkur. Hverjum ætti ég annars að treysta? Og þar að auki eruð þið báðar svo duglegar, að það kem- ur til að ganga eins og í sögu. Þú, Aggí, neyðist til að leggja fram eina tvo tíma í viðbót, því að Tit getur ekki verið ein; en það verða auðvitað aukatekjur fyrir þig, og það er alltaf eitt eða annað, sem þig langar til að kaupa, svo að þetta er þér vonandi aðeins gleðiefni.11 „Það er þó alveg satt og víst,“ sagði Aggí frá sér numin. Hægindastól.11 Tit fór að hlæja. „Hvar ætlarðu að skáka þeim hægindastól, það er mér ráðgáta, en þú hefir líklega hugsað það út.“ „Vertu alveg viss!“ Ruth notaði nú nærri allan fyrrihluta dagsins til að segja fyrir. Hún endurtók það sama hvað eftir annað og var sýnilega óróleg og eirðarlaus. „Nú sting ég upp á að þú hvílir þig,“ 21

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.