Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Blaðsíða 45

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Blaðsíða 45
„STÖRIN SYNGUR“ 187 »Hún fæddist um vordag, er vindarnir sungu og Vesturá kolmórauð söng og hló og vísur á vorsins tungu vöktu sofandi bjarkaskóg, það var daginn, sem heiðlóan flaug til fjalla inn í frelsið og hrísmósins angan lönd. Það var hljómur og kæti um heiðina alla og hlegið og sungið um dal og strönd. Hún ólst upp í dalbóndans dimma hreysi við daganna eril og hversdagsstörf, f hálfgerðu hirðuleysi um hjartans gróður og kærleiksþörf. Og þó var hún fegurst af dalsins dísum og draumur hins tápmikla æskumanns og Ijóminn í öllum hans ástavísum og einasta gleðin í störfum hans«. Og svo endar þessi sorgarsaga dapur- lega, eins og allar slíkar sögur: »Hún dó líka einn haustdag er hjarnsins þyljur um herðarnar vöfðust í kuldagjóst, og dauðans ljósustu liljur lögðust á hennar ungu brjóst. Og stormurinn sönglaði i hljóðum hálfum, og hríðin þuldi við eggjar skarðs, er bóndinn ók henni á sér sjálfum áfangan hinnsta — til kirkjugarðs«. • Kvæðið „Drukkinn bóndi í Skyttudal“ er perla í sinni röð, svo lifandi er myndin, sem skáldið dregur þar upp og svo eðli- leg að snillingnum einum er samboðið. Maður sér í anda gamla manninn syngj- andi, hálffullan á heimleið í þögn sum- arnæturinnar. En það er bezt að lofa skáldinu að segja það sjálfu, það gerir hvort sem er enginn betur. »Er sveitin fylltist sorta langra síðsumarsnótta og svefndrukkinn blærinn leikur fölnuð ehgin við, þá kemur hann eftir veginum á klárnum Ijósa skjótta með klyfjahest í taumi að dalabænda sið. — Hann er bóndi framan úr dölum er heim úr kaupstað kemur, hann kemur þangað sjaldan, aðeins vor og haust. Hann er fasmikill að vanda og fótastokkinn lemur. Hann er fullur, gamli maðurinn, og syngur hvíidarlaust. Og síðar í kvæðinu kemur þetta smellna erindi, sem lýsir heimkomu gamla manns- ins: »Er kemur hann í tröðina er trúss á öðrum klakknum og taglbandið er slitið, af klárnum snarast senn, og álagið er tapað og ístaðið frá hnakknum og önnur gjörðin horfin — en taskan lafir enn«. Og seinna í kvæðinu koma fram sefs- sannindin um þenna „drykkfellda bónda og kvæðamann". Þar segir skáldið: »Hann var fátækur og þrældómsins brennimarki brenndur og bættar voru flíkurnar og höndin þreytta kreppt, en það er engin nýlunda um heiðabóndans hendur. Þær hafa flestar drengilega við örbirgðina kepptc. Stundum hljóðnar harpa skáldsins og tónar hennar verða þungir og harðir. Þá verða til kvæði t. d. „Ljótt kvæði“ og „Ef pílagrímur sannleikans“, er óhætt að full- yrða að hið síðarnefnda má telja eitt þróttmesta kvæði bókarinnar. Efni kvæð- isins er nöpur ádeila á þjóðfélagið og henni er þannig fyrir komið að hún verk- ar fullkomlega. Þar er m. a. þetta: »Ef pílagrímur kærleikans þú kysir helzt að vera og kæmir þar til hjálpar, sem' neyðin fyrir er og vildir þreytta verkamannsins byrðar sjálfur bera og beygðir ekki úr vegi þó skækja mætti þér, þá mundu allir höfðingjarnir hrækja á eftir þér. Það mundi engu breyta þó mark þitt væri hið sama og meistarinn frá Nasaret forðum valdi sér, þú létir þá í sölurnar bæði fé og frama og fylgir þeim að málum, hvers réttur brotinn er. Nei, smánarorð og formælingar fylgja mundu þér«.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.