Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Blaðsíða 29

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Blaðsíða 29
HNEFI OG AUGA 171 urinn er), þessvegna breytti hann um að- ferð, hoppaði á öðrum fæti, en hafði hinn yfir bak hafursins. En ferðin gekk æði skrykkjót't. Jónas og hafurinn voru að upplagi mjög ólíkir, enda höfðu þeir oft elt grátt silfur saman, og aldrei orðið á eitt sáttir. Jónas hafði gaman af svona ferðalögum, en haf- urinn ekki; þannig voru skiptar skoðanir í því máli. Og nú hafði Jónas púðurflösk- una í annarri hendinni og gat því illa neytt sín, enda fór allt í hundana, þegar heim kom á hlaðið. Jónas daitt af baki og hafurinn gaf sigur sinn til kynna með löngu: bæ-æ-æ! Það var horfandi á dánumanninn! Hann hékk í hornum hafursins, og stóð á fætur, án þess að sleppa tökum. Nú fann hafur- inn að hann gat ekki stangað, en hann gat streytzt á móti og það gerði hann. Jónas lét engan bilbug á sér finna. Hann var orðinn kafrjóður í framan og starði köld- um, bláum augum á hafurinn. Augu haf- ursins lágu í leyni undir loðnum brún- um; þau voru heldur ekki vingjarnleg. Jónas þagði og hafurinn sagði heldur ekki margt. Hver gagnvant öðrum voru þeir eins og sönn ímynd afturhalds og fram- sóknar. Hárlufsurnar gægðust upp um gat á húfu Jónasar, hnjákollarnir út úr buxunum, skyrtan skítug og rifin upp fyrir haldið og — og horinn niður úr nef- inu. Hann var sannkallað snyrtimenni. Þögnin var löng og boðaði stórtíðindi. Loks hreytti Jónas út úr sér með inni- legum sannfæringarkrafti: „Helvíiti's kvikindið!“ Því svaraði hafurinn ekki, en mjakaði sér aftur á bak að fjalhögginu. Jónas var í minni hluta og varð því að fylgjast með. Hann hafði komið auga á sveðju, sem stóð í fjalhögginu, með henni hugði hann að hefna sín. Hér í sveitinni er venja að slátra geit- um á þann hátt, að slátrarinn sest klof- vega yfir þær og keyrir svæfingarjárnið á kaf niður í hnakkagróna. Það nægir venjulegast. En við geitur, sem aðeins á að hirta, er sú aðferð ekki hæ'ttulaus. Þá er hentugra að lemja þær með staiur; yf- ir túngarðinn fara þær varla þann dag- inn. Ekki veit ég hvort Jónas ætlaði sér heldur að deyða hafurinn eða hirta, og þori því ekki að bera ábyrgð á verknaði hans — en hann miðaði sveðjunni vendi- lega og ýtti á. — Bæ-æ-æ! emjaði hafurinn. Hann bar sig mjög aumlega, þó að sveðj- an kæmist varla inn úr skinninu. En mik- ið blæddi. Þeiir hentust nú fram og aftur um hlaðið, og hafurinn emjaði sáran. Jón- as óittaðist að hljóðin heyrðust, og mælti því: „Hættu þessiu bölvuðu orgi! Víst var það sárt, en nú ertu búinn að grenja nóg.“ Þegar ekkert dugði, sleppti hann tök- um. í raun og veru kemur þessi formáli ekki beinlínis sögunni við, en megi ég ekki segja frá öllu, hætti ég. Púðurflask- an var heil ennþá; það gladdi Jónas stór- lega. Hann hélt varlega á henni eins og litlum fugli, þegar hann fór inn til þess að leita að íkveikjuþræðinum. Það er enginn barnaleikur að kveikja í púðri í fyrsta sinn, og Jónas vissi mikið vel að ekki dugði að setja eldspýtuna í púðrið, heldur þurfti langan þráð. Það gekk illa að koma bandspottanum gegnum tapp- ann, en með þolinmæðinni tókst það. Öllu ver gekk með síðari hluta skemmtiskrár- innar. Kötturinn hafði leitað hi'tans eins og hann er vanur, og sat nú beint framund- an ofnimum og ornaði sér við eldinn. Og nú skal ég segja ykkur hvernig það atvikaðist að ofninn varð byssan og kött- urinn forhlaðið. Jónas kom sprengiefninu fyrir fast við köttinn; honum fannst, sem 22*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.