Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Blaðsíða 43

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Blaðsíða 43
„STÖRIN SYNGUR“ 185 Valdimar Hólm Hallstað: .Störin syngur* og höfundur hennar í islenzkum bók- mennfum. I. íslenzk ljóðagerð hinna síðari ára hefir meir og meir færst í það horf að vera hversdagsleg iðja þeirra, sem hana hafa stundað og þar af leiðandi sviplítil og áhrifalaus fyrir hina, sem átt hafa að njóta þessarar andlegu framleiðslu. Ekki svo að skilja, að ekki séu til frá þessu heiðarlegar undantekningar, en því mið- ur, bæði of fáar og veigalitlar til þess að eftir þeim hafi verið tekið, eða um þær rætt svo orð sé á gerandi. Megin þorri þeirra ljóðabóka, sem út hafa verið gefnar hin síðari ár, hafa þetta sameiginlegt, þær hafa margar verið áferðarsléttar og komið laglega fyrir sjónir, meira ekki, þær hafa ekki markað neitt nýtt spor í áttina til frum- legs vals á yrkisefnum né meðferð þeirra. Og æfiferill flestra þeirra hefir orðið sorglega stuttur. Margar grafist í þögn um leið og þær urðu til og gleymst að fullu og öllu, það er líka og verður alltaf hlutskifti meðalmennskunnar hvar og í hvaða mynd sem hún birtist. — Það er þess vegna hvoru tveggja í senn, bæði vottur batnandi árferðis í þessum efnum og einnig óblandið gleðiefni öllum þeim, er ljóðum unna, að koma skuli á bóka- markaðinn ljóðabók, sem stingur alveg í stúf við allt það, sem undanfarið hefir birzt af því tagi, ljóðabók, sem er langt hafin yfir hversdagsleik hinnar vélgengu ljóðaframleiðslu síðustu tíma, ljóðabók, sem er ósvikinn skáldskapur spjaldanna á milli, túlkandi hugsanir og tilfinningar manns, sem hlotið hefir skáldgáfuna í vöggugjöf, en ekki meðtekið hana eins og hvern annan utangarna lærdóm, manns, sem yrkir af þörf, er skáld af ,,guðs náð“, ef svo mætti að orði kveða. Þetta og margt fleira þessu líkt má segja að ekki sé ofmælt um hina nýju og glæsilegu ljóðabók Guðmundar Frímanns, „Störin syngur“. Það má vel vera, að einhverjum finn- ist hér of mælt, en víst er um það, að öllum, sem kunna skil á gildi íslenzkrar ljóðagerðar, dylst ekki, að hér er skáld á ferðinni, frumlegt skáld, sem leggur óhikað inn á nýjar brautir leitandi að nýjum viðfangsefnum og í bjargfastri trú á mátt sinn og megin, skáld, sem knýr strengi hinnar hljómfögru hörpu sinnar svo hátt og snjallt, að allir, sem um ganga, verða að stanza og hlusta með lotningarfullri aðdáun. Og í hinum sam- ræmisríku tónum listamannsins felst óskráður spádómur um það, að hin blæ- fagra hrópandi list hans verði aldrei þöguð í hel. II. Guðmundur Frímann er engan veginn nýliði í íslenzkri ljóðagerð. 17 ára gamall gaf hann út sína fyrstu ljóðabók „Nátt- sólir“. Það voru að vísu æskuljóð, stefnu- lítil og hikandi, en þau báru samt vott um óvenju þroskað hugmyndaafl og fleygan anda. Þeir eru áreiðanlega ekki margir 17 ára unglingarnir, sem eftir liggja kvæði á borð við þau, sem eru í „Náttsólum“, hvað þá betri. Önnur ljóðabók Guðmundar, „Úlfa- blóð“, kom út 1933, eða ellefu árum síðar. Sú bók var að vísu gefin út undir gerfi- nafni, en fljótt mun hafa hlerast, hver hinn rétti höfundur var. í „Úlfablóði“ var hvert kvæðið öðru prýðilegra og gaf sú bók glæst fyrirheit um hinn unga og efnilega höfund. Nú eftir 4 ár kemur þirðja bókin, „Störin syngur“, stór og fall- 24

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.