Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Side 22

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Side 22
164 NÝJAR KVÖLDVÖKUR „Þú! Hvað vilt þú?“ Hann kom inn til hennar og lagði hend- urnar á axlirnar á henni. „Elsku Ruth, þetta er orðið alveg óbæri- legt. Ég elska þig meira en allt annað. Ég þoldi ekki —• — hann þarna náungann. Og þú sagðir að tíminn hefði flogið. Mér fannst kvöldið í gærkvöld vera þúsund ár. Ruth, vilt þú og verzlunin verða konan mín?“ „Hvort við viljum!‘^ Hún rak upp fagnaðaróp og vafði hand- leggjunum um hálsinn á honum, og hann lyfti henni upp og setti hana á hennar eigið borð. Sjálfur stóð hann við hliðina á henni og hélt utan um hana. „Ég hataði þessa ungu stúlkuna í gær- kvöld,“ sagði Ruth og faldi eldrautt and- lit sitt við barm hans. „Það var Sissí,“ sagði hann þurrlega, eins og það eitt væri nægileg skýring. „0,“ sagði Ruth. „En þú keyptir rósir handa henni.“ „Rönning hafði fyrst keypt handa þér.“ „Þið höfðuð kampavín!11 „Þið fyrst.“ Löng þögn. Svo sagði Árni: „Það versta er, að ég verð að fara frá þér í fyrramálið. Ég ætla í hálfsmánaðar ferð til Þýzkalands. Þú skilur, ég varð að komast eitthvað burt úr borginni og frá þér.“ Ruth hló. „Það gerir ekkert til. Ég fer nefnilega líka burt í fyrramálið. Heim. Af nákvæm- lega sömu ástæðum.“ „Ó, það er alveg fyrirtak,“ hrópaði Árni, „þá verðurðu heima, þangað til ég kem til að heilsa upp á foreldra þína. Svo fer þú með mér til Óslóar og heilsar upp á for- eldra mína og lítur eftir fylgifiskum þín- um í búðinni.“ „Lít eftir?“ „Já, í það skiptið áttu aðeins að líta eftir og segja fyrir, því þú átt að fara um hæl heim aftur og útbúa þetta, sem þið ung'u stúlkurnar kallið heimanfylgju, því að þið getið víst ekki gift ykkur án henn- ar. „Hin fróma, unga stúlka, ég, beygir sig í hlýðni fyrir skipunum þínum,“ sagði Ruth hlæjandi. „Litla, starfandi stúlkan mín,“ tautaði Árni með andlitið á kafi niðri í hrokknu hári hennar. „Ég vona að þú þurfir aldrei að iðrast þess, að þú giftist bæði verzluninni og mér,“ sagði Ruth stillilega. Svo rétti hún úr sér og augu hennar ljómuðu, er hún sagði: „Þú skalt aldrei þurfa þess, því ég skal sýna bæði öllum heiminum og þér, að starfandi stúlka getur verið bæði góð hús- freyja, eiginkona og móðir.“ „Starfandi stúlka!“ sagði Árni og þrýsti henni fastara að sér. „í sál minni er nú ekki framar minnsti snefill af efa.“ Skrítlur. Maður nokkur settist af vangá .á ný- málaöan bekk, reis í ofboði á fætur aftur og mælti: »Þetta var afleitt; nú fór málningin í buxurnar mínar«. »Það gerir ekkert til«, svaraði málar- inn með mestu hægð; »eg strýk yfir hann aftur hvort sem er!« Tveir flækingar gengu um þar sem bóndi var að sá. »Þú mátt reiða þig á það«, kallaði annar flækingurinn tíl bóndans, »að við skulum bráðlega app- skera ávöxtinn af vinnu þinni«. »Það vona eg líka«, svaraði bóndinn, »því að eg er að sá hampi«.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.