Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Síða 33

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Síða 33
M. Hull: Arabahöfðinginn. Ástarsaga úr eyðimörkinni. Helgi Valtýsson þýddi. (Framh.) Það var sennilega liðin rúm klukku- stund, er hún hrökk upp og glaðvaknaði. Hún lá grafkyrr og gægðist varlega gegn- um löng og þétt augnahárin. Tungls- ljósið flæddi inn í herbergið — ekkert var að sjá — en hún hafði greinilega fundið til þess, að hún væri ekki alein í herberginu. Rétt í því hún vaknaði, þótt- ist hún nærri því viss um að hafa séð einhvern skugga hverfa últ úr dyrunum. Hún brá sér fram úr rúminu og út á sval- irnar — en þar var enginn. Hún teygði sig út yfir handriðið og gægðist niður, en sá hvorki né heyrði neitt merkilegt. Henni var dálítið einkennilega við, en gekk svo inn á herbergið og kveikti raf- Ijósið. Enginn af munum hennar var horfinn, hvorki úrið hennar né fílabeins- skreytta marghleypan, sem lá á borðinu við höfðalagið hennar. Hún hleypti ofur- lítið brúnum og litaðislt um á ný. „Mig hlýtur að. hafa dreymt þetta,“ tautaði hún efablandin, en mér fannst sannar- lega, að það væri einhver — há, stór hvítklædd vera! Eg fann það, að hún var hérna! Hún dokaði enn við fáeinar mín- útur, svo yppti hún öxlum, slökkti ljósið og fleygði sér upp í rúmið, og fimm mín- útum síðar var hún aftur sofnuð vært og rólega. Taugaveikluð var Díana Mayo ekki.------- II. Díana var búin að kveðja hótelgestina, sem höfðu fylgt henni úr garði, eins og ákveðið var, og hafði nú riðið margar mílur vegar inn eftir eyðimörkinni og þótt ferðalagið afar skemmtilegt. Nú voru þau nýkomin að vinjum þeim, þar sem gista átti fyrstu nóttina, og reyndist þar allt viðbúið móttöku þeirra. Búið var tjalda og koma farangrinum fyrir, og allt á reiðum höndum, er til þurfti að taka. Hvorki Sir Aubrey né Stevens þjónn hans, sem var góðu vanur og vandlátur mjög, engu síður en húsbóndi hans, er hann hafði fylgt á öllum ferðum hans, frá því er Díana var barn að aldri, — höfðu ú'.t á neitt að setja.. Díana litaðist um í litla ferðatjaldinu sínu með mesta ánægjusvip. Tjald þetta var miklu minna en tjöld þau, sem hún áður hafði vanist, og blátt áfram hlægilega lítið í samanburði við tjaldgímaldið, sem hún hafði haft á Indlandi árið áður, því að þar var bæði búningsherbergi og baðher- bergi. En að þessu sinni hafði hún ásett sér að komast af án allra þessháttar þæg- inda. Litla ferðarúmið hennar, baðker úr sinki og ofurlítið borð, sem hægt var að brjóta saman, og ferðakoffortin hennar tvö fylltu allt tjaldið. Stærra var húsrýmið ekki. En Díana hló aðeins að erfiðleikunum og óþægindunum, er þeim fylgdu. Vatnið úr baðkerinu hafði skvetzt út yfir alit rúmið þegar hún var að skvampa í því, og sáp- una fann hún aftur alveg frammi í tá á öðru stígvélinu síniu. Hún hafði farið úr

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.