Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Side 35

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Side 35
ARABAHÖFÐINGINN 177 um beint framan í hann. Þau virtust vera enn dekkri, er hún horfði á hann. „Jú, — ég hefi hugsað mikið um það í dag, Díana! Þessi leiðangur, sem þú ert nú að leggja út í — alein úít á eyðimörkina —- er blátt áfram hreinasta fjarstæða!“ „Er ekki orðið heldur langt áliðið dags til þess að komast að þeirri niðurstöðu11, svaraði hún kaldhæðnislega. En hann lét sem hann heyrði það ekki. „Þú hlýtur þó sjálf að sjá, að þetta er hreinasta fásinna, er þú nú stendur and- spænis veruleikanum í fullri alvöru! Það er alveg óhugsandi, að þú getir ráfað ein- sömul um eyðimörkina allan næsta mán- uð aðeins með þessa bölvaða svarthöfða til fylgdar. Þrátt fyrir það þó að fjár- haldsmennska mín lögum samkvæmt rynni út í septemberlok síðastliðið, þá ber ég þó enn einskonar siðferðislega ábyrgð á þér. Og þó að ég hafi alið þig upp eins og dreng og litið á þig sem yngri bróður, en ekki systur, verður þó eigi hjá þeirri stað- reynd komizt, að þú ert stúlka — mjög ung stúlka. Og það er ýmislegt, sem kona alls ekki má gera. Hefðir þú verið piltur, eins og ég alltaf hefi óskað mér, þá hefði verið öðru máli að gegna; en þú ert nú enginn piltur, og þessvegna er þessi fyrir- ætlun þín alveg ófær!“ Rödd hans var þrungin af óþolinmæði og gremju. Díana kveikti letilega í vindling, sneri sér í stólnum og hló háðslega. „Hefði ég ekki lifað samvistum við þig alla æfi, Aubrey, þá myndi þessi bróðurlega um- hyggja þín ganga mér til hjarta. Eg myndi þá hafa trúað því, sem þú sagðir. En af því ég þekki þig svo vel, er mér ljóst, að það er ekki kvíði og umhyggja fyrir mér, sem knýr þig, heldur blátt á- fram hitt, að þér þykir það óskemmtileg tilhugsun að halda áfram ferðinni án mín. Þú hefir smám saman vanist svo á það að hafa mig hjá þér — það er svo skolli þægilegt að gi'ípa til mín og láta mig létta af þér ýmsum leiðindum og óþægilegri fyrirhöfn, sem alltaf kemur fyrir á ferða- lagi. Þú varst þó að minnsta kosti hrein- skilnari í Biskra, því þá settirðu þig upp á móti þessu án þess að tilfæra nokkrar ástæður fyrir því. Hversvegna hefirðu frestað því, þangað til nú í kvöld, að bera fram þessar efasemdir þínar?1 „Af því að ég hélt, að nú myndir þú, loksins, vera orðin svo hyggin, að þú skildir þetta sjálf. í Biskra var alls ekki hægt að ræða þetta við þig. Þú bjóst þig ósköp rólega undir leiðangur þenna án þess að taka nokkurt tillit til vilja míns og óska, og ég lét þig fá að fara þínu fram, af því ég var sannfærður um, að þegar þú værir hingað komin, myndi þér að lokum verða það ljóst, að þetta er al- veg ókleift. Díana! Hættu nú við þetta brjálsemis-flan þitt!‘ „Nei!‘ „Díana! Taktu nú sönsum!“ „Aubrey! Ég hefi þegar sagt mitt síð- asta orð í þessu máli, og enginn mann- legur máttur megnar að aftra mér frá að fara. Öll þessi svonefndu rök þín sann- færa alls ekki mig, sem þekki þig svo vel. Þú ert að hugsa um sjálfan þig og makræði þitt, en alls ekki um mig. Þú neitar því heldur ekki, sökum þess, að þú blátt áfram getur það ekki — af því að það er satt, sem ég segi!“ Þau stóðu andspænis hvort öðru, sitt hvoru megin við borðskriflið. Sir Aubrey roðnaði af reiði, og sjóngler hans datt úr augnatóftinni og small við einn vestis- hnappinn. „Þú ert bölvaður þverhaus, skal ég segJa þör, og það hefirðu verið alla þína daga!“ sagði hann nötrandi af bræði. Hún leit á hann, og um einbeitnislegan munn hennar komu kaldhæðnislegir drættir, og minnti svipur hennar þessa stundina greinilega á bróðurinn, sem stóð rétt hjá henni. 23

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.