Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Síða 38

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Síða 38
180 NÝJAR KVÖLDVÖKUR En hún skeytti því engu, er hann sagði, starði aðeins á steininn, sem hún hafði ekki hæft. „Ég skil ekkert í þessu! Hvern- gat ég nú misst marks? Steinninn er þó eins stór og heilt hús! tautaði hún hugsi og miðaði marghleypunni á ný. En Sir Aubrey þreif í sama vetfangi um úlnliðinn á henni. „í guðanna bænum, Díana! Gerðu þig nú ekki að athlægi í annað sinn! Þú hefir sveimér gert þig nógu lítilfjörlega í augum fylgdarmanna þinna!“ hvíslaði hann að henni og leit á Arabana, sem biðu skammt frá þeim. Díana hikaði lítið eitt og stakk síðan marghleypunni ’aftur í belti sitt. „En ég skil ekkert í þessu!“ sagði hún á ný. „Það hlýtur að vera birtan!“ Svo steig hún á bak hesti sínum, reið upp að hlið Sir Au- brey og rétti honum höndina. „Vertu nú sæll, Aubrey! Þú getur búizt við mér mánuði eftir að þú ert kominn vestur. Ég síma til þín frá Cherbourg. Góða ferð! Ég skal vera stundvís!“ bætti hún við hlæjandi. Svo gaf hún Mústafa Alí bendingu og sneri hesti sínum til suðurs. Hún reið lengi hljóð og þegjandaleg. Deilan við Aubrey hafði gert hana hugsi. Henni var full ljóst, að á þetta fyrirtæki hennar var litið sem mestu óhæfu, en uppeldi hennar hafði kennt henni að bjóða siðvenjum og almenningsálitinu byrginn. Er hún í upphafi hafði gert á- ætlun um þennan leiðangur sinn, hafði henni ekki einu sinni dottið í hug, að nokkur myndi finna að því eða hafa neitt út á það að setja — en auðvitað hefði það' heldur ekki skipt neinu máli fyrir hana. Hún hefði hvort sem var farið sínu fram. Er svo gagnrýnin og aðfinnslurnar yfir þessari áætluðu skemmtiferð út í eyði- mörkina komu úr öllum áttum, varð hún fyrst hissa, en þótti síðan gaman að því. En smám saman tók gamanið að grána, og að lokum gramdist henni allmjög allt þetta hjal og þvaður, sem umkringdi hana, hvar sem hún fór, og elti hana á röndum. En að fólk skyldi ekki geta látið hana í friði og séð um sig! Og það tók alveg út yfir allan þjófabálk, að Aubrey skyldi syngja með í þessum kór og gera annað eins veður úr þessu þvert ofan í allt, sem hann til þessa hafði haldið fram! Hún var reið og hugsaði með andstyggð til alls þess, sem hann hafði sagt bæði í gærkvöld og í morgun. Það var algerlega ósamrým- anlegt öllu því, sem hann hafði prédikað fyrir henni alla hennar ævi. Því meir sem hún hugsaði um þetta, þess ákveðnari var hún í því að fylgja fram sinni eigin bjarg- föstu sannfæringu og víkja aldrei hárs- breidd frá henni! Aubrey bar sjálfur á- byrgð á þessum skoðunum, hann hafði sjálfur innprentað henni þær, og vildi hann nú snúa við þeim baki — hann um það! Hefði Aubrey raunverulega talið, að hér væri hætta á ferðum, þá hefði hann þó sannarlega einu sinni getað yfirbugað leti sína og makræði og farið með henni — það var þó aldrei nema einn einasta mánuð um að ræða! En nei! Hann var sjálfselskan og síngirnin eintóm og hugs- aði aðeins um sjálfan sig. Og hún var mesti þverhaus, svo eigi var við neinni tilslökun að búast af hennar hálfu. Það hefði verið til of mikils mælzt!------- Þetta var þá eyðimörkin! Loksins var hún þá lögð á stað í leiðangur þann, sefn hana hafði dreymt um og búið sig undir árum saman. Hún hafði ekki getað hætt við þessa ferð. Hún brosti geiglaust að öllu þessu hættu-hjali: Hvernig ætti nokkuð illt að geta fyrir hana komið á eyðimörkinni, blessaðri eyðimörkinni hennar, sem hún hafði þráð alla ævi! Henni virtist ekkert koma sér ókunnug- lega fyrir sjónir, heldur fannst henni eins og hún hefði þekkt það alla ævi. Glóheit sólin á heiðum himni og hillinga-tíbráin

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.