Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Page 42

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Page 42
184 NÝJAR KVÖLDVÖKUR Díana leit á hann hissa, og þvínæst um öxl til fylgdarmannanna. Mennirnir voru komnir á bak. Brosið hvarf úr augum hennar. Mústafa Alí var að vísu farar- stjóri; en hún var þó foringi leiðangurs ins! Hefði honum ekki skilizt það fyrr, þá var nú kominn tími til þess, að hann fengi að vita það. Hún leit á armbands-úr sitt. „Það er ríkulegur tími!“ sagði hún kuldalega. Mústafa Alí beygði sig djúpt á ný. „Það er langt til næstu vinja, og þar verðum við að gista í nótt,“ flýtti hann sér að segja í mótmælaskyni. 7 Díana sveiflaði öðrum fætinum í brúnu reiðstígvéli yfir hinn, tók fullan lófa sinn af sandi og lét hann renna hægt út um greipar sér. — „Við getum þá riðið hrað- ara,“ sagði hún rólega og horfði á sand- kornin, sem glitruðu í sólskininu. Mústafa Alí yppti öxlum óþolinmóðlega og maldaði í móinn. „Mademoiselle ætti að leggja af stað núna.“ Díana leit snöggt upp — og brá fyrir leiftri í augum hennar. í rödd hans hafði falist einskonar skipunar-keimur, þrátt fyrir alla auðmýktina og fleðuskapinn. Hún sat kyrr og var ósköp róleg og fyllti aftur lófa sinn af sandi. Fararstjór- inn stóðst ekki hið rólega augnaráð henn- ar, augu hans hvörfluðu til og frá, og að lokum leit hann undan. „Við leggjum af stað, þegar mér sýnist, Mústafa Alí!“ sagði hún stutt í spuna. „Þér getið sagt mönnum yðar fyrir, en sjálfur verðið þér að hlýðá skipunum mínum. Ég skal gera yður aðvart, þegar ég er tilbúin. Og nú getið þér farið!“ Hann stóð enn stundarkorn hikandi og ruggaði dálítið á hælunum án þess að ákveða sig. „Ég sagði yður að fara!“ tók Díana upp aftur byrst og smellti með fingrun- um aftur yfir öxl sér. — Það hafði hún lært af frönskum liðsforingja í Biskra, — og lét Mústafa Alí fara án þess að gefa honum frekari gaum, og leit heldur ekki um öxl til að sjá, hvaða fyrirskipanir hann gæfi mönnum sínum. Hún leit aft- ur á úrið. Það var ef til vill orðið nokkuð framorðið, og næsti áfangastaður kann- ske lengra í burtu, heldur en hún hafði hugsað sér. En Mústafa Alí hafði samt orðið að læra að hlýða, þótt þau þyrftu að ríða til miðnættis, áður en þau næðu næsta áfanga. Hún var meira að segja að vona, að þau kæmu ekki þangað fyrr en seint um kvöldið. Það hefði verið eitt- hvað annað að fara einsömul ríðandi inn í töfraveldi eyðimerkurinnar og vera al- veg laus við þennan hávaðasama símas- andi hóp, sem hafði algerlega truflað hinn djúpa og hátíðlega frið og kyrrð þessarar ægilegu auðnar. Hvað það hlyti að vera dásamlegt! Hún var alltaf öðru hvoru að líta á klukkuna, og það brá fyr- ir glettnissvip í augum hennar. Hún ætl- aði sér.að láta Mústafa Alí bíða a. m. k. eina klukkustund, og þá hlaut honum lík- lega að skiljast, að það var hún — og aðeins hún —• sem hér réði lögum og lof- um. Ein klukkustund frá eða til gat svo sem ekki gert neinn verulegan mismun. Hana dauðlangaði til að líta við, og sjá, hvernig Mústafa Alí tæki þessu; en hún gerði það samt ekki. Það gat vakið eftir- tekt og misskilning. Þegar hin ákveðna klukkustund var liðin, stóð hún upp og gekk í hægðum sínum í áttina til Arabanna. Fararstjórinn var hálf gremjulegur á svipinn, en hún gaf honum engan gaum, og er þau lögðu af stað, fór hún að tala um Biskra, svo að hann varð að ríða við hliðina á henni og lét munninn ganga í sífellu.. Hana langaði minnst af öllu til að heyra nokk- uð um Biskra, en það var einmitt það, sem honum var ætíð tíðræddast um, og hún hugsaði sér, að það væri bezt að grípa ekkert fram í fyrir honum, því að

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.