Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Síða 5

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Síða 5
Leif K. Rosenthal Ulfs saga. í þýðingu eftir Margeir Jónsson og Jóhann Björnsson. V. NÝIR LANDNEMAR. Sumarið, haustið og veturinn leið við- burðalítið. Fólkinu leið vel á eyjunni sinni, það hafði nóg til að bíta og brenna, því að veiðiföngin brugðust ekki. Sól hafði af hendingu komizt að því, að kjöt- ið mátti vindþurrka, og þessi aðferð reyndist þeim hagnýt veturinn eftir, því að þær kjötbirgðir, sem voru til um haust- ið, geymdust sæmilega og komu í góðar þarfir, þegar úlfarnir eða hríðarnar hindruðu veiðarnar. Úlfur hafði stækkað mikið og safnað kröftum. Hann var orðinn eins hár og Örn, en grannur og liðlega vaxinn. Hann var fullkomlega hlutgengur við dýraveið- ar, á við föður sinn og Örn. Og nú var orðið einum fleira í kofanum en áður. Síðastliðið sumar hafði Sól eignazt dreng. Hann var nefndur Björn, og varð snemma- mjög efnilegur, og vorið eftir var hann farinn að vappa úti við og leika sér eftir föngum að því, er fyrir augun bar. Örn og Sól höfðu nú byggt sér ann- an kofa til íbúðar, skammt frá hinum. Þá var það dag nokkurn að Tóki kom af veiðum sínum, mjög alvarlegur í bragði. Talsverðri vegalengd fyrir sunnan vatn- ið hafi hann séð mannaspor í leirflögum. Af sporunum réði hann, að mennirnir höfðu verið tveir, að elta elg, enda fann hann leifarnar af dýrinu skammt í burtu. A þessu stigi málsins mátti gera ráð fyrir, að þessir nýju aðkomumenn reynd- ust fjandsamlegir. Að vísu var hugsan- legt, að þeir gerðu ekkert illt af sér, ef þeir héldu áfram ferð sinni, en væru þeir margir og tækju þeir sér bólfestu í nánd, mátti búast við, fyrr eða síðar, ósamlyndi út af veiðunum. Langvarandi áhyggjur voru fjarri manni með Tóka skapgerð. Ef hinir ókunnu menn vildu berjast, þá var að taka því, sagði Tóki, en þangað til væri sjálfsagt að vera vel á verði við öllum viðsjárverðum árásum. Að öðru leyti liðu dagarnir tilbreyting- arlítið fyrir eyjarbúum. Þessi tíðindi, sem Tóki hafði fært, smágleymdust fyrir öðr- um atvikum lífsbaráttunnar. Og þegar langur tími leið, án þess að nokkuð bæri til nýrra tíðinda, álitu allir, að hinir ókunnu hefðu haldið leiðar sinn- ar, án þess að komast á snoðir um manna- byggðina. En það átti fyrir Úlfi að lig'gja að sann- færast um, að þetta var fljótfærnisleg ályktun. Einu sinni nokkru eftir þetta fór Úlfur lengra suður á bóginn en hann var vanur, að leita að veiðidýrum. Þá rakst hann á mannsspor, sem lágu í vesturátt, og af dýpt sporanna mátti ráða, að maðurinn hafði borið þunga byrði. Úlf langaði til að vita, hvert sporin lágu, og reyndi að rekja þau. Með mikilli varúð læddist hann gegn- um skógarrunnana og hlustaði með ná- kvæmri athygli eftir hverju hljóði, sem barst að eyrum hans. Sporin lágu inn á milli nokkurra gróð- urlítilla mela, og var erfitt að fylgja þeim þar. Stundum missti hann því sjón- 13*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.