Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Qupperneq 44

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Qupperneq 44
138 NÝJAR KVÖLDVÖKUR aræsingu og sálarraun. Djúp, kvalaþrung- in andvörp hristu og skóku líkama henn- ar í' faðmi hans. Varir hans titruðu, er hann leit á hana. Þetta var allt honum að kenna! Og hann lyfti henni upp á arma sína og bar hana yfir að dívaninum, og skyndilega brauzt blóð hans eins og eld- straumur gegnum æðar hans. Hann lagði hana gætilega niður stóra, mjúka svæfl- ana og hneig sjálfur á kné við hlið henn- ar, án þess að sleppa henni úr faðmi sín- um, og hvíslaði eldheit ástarorð í eyra henni. Smámsaman rénaði grátur hennar, og andköfin þverruðu, og hún lá grafkyrr og svo föl, að hann varð alveg skelkaður. Hann ætlaði að rísa upp til að sækja ein- hverjar hressingar handa henni, en óðar er hann hreyfði sig, þreif hún í hann dauðahaldi og þrýsti sér skjálfandi upp að honum: „Nei, nei! Eg þarf einkis með! Ef þú aðeins ert hjá mér! hvíslaði hún svo veikt, að varla heyrðist. Hann tók fastar utan um hana og lyfti andliti hennar upp að kinn sinni. Augu hennar voru lokuð, og tárin Jiéngu í augnahárunum, sem vörpuðu dökkum skugga á bleikar kinnarnar. „Díana! Ætlarðu aldrei framar að líta á mig?“ hvíslaði hann, og rödd hans var auðmjúk og biðjandi, og varir hans snertu lokuð augu hennar. Hann fann, hve augnalok hennar titr- uðu undir kossum hans. Svo opnaði hún hægt augun og horfðist í augu við hann. Augu hennar voru ennþá dimm af angist. „Þú ætlar þá ekki að senda mig á burt?“ hvíslaði hún í bænarróm eins og dauð- hrætt barn. „Hann byrgði niður hálfkæfða grát- stunu og þrýsti brennandi kossi á varir hennar, áður en hann svaraði. Og svarið bom eins og hátíðleg heitstrenging: „Nei, aldrei! Eg sleppi þér aldrei héðan af! Guð minn góður, ef þú vissir, hve þungbært mér var að hugsa til þess að eiga að sjá af þér — hvílík ofraun mér var að senda þig á brott! Guð gefi, að ég geti gert þig hamingjusama! Þú þekkir mig nú og veizt, hvernig ég get verið, vesalings barn!“ Roði færðist hægt í kinnar hennar, og ofurlítið titrandi bros fæddist á vörum hennar. Hún smeygði armi sínum gæti- lega um háls honum og dró höfuð hans niður að brjósti sér. „Eg er ekki hrædd“, hvíslaði hún. „Eg óttast ekkert í heimi hér, þegar ég finn, að þú heldur utan um mig, stolti eyðimerkurunnusti minn! Ah- med! Monseigneur!“ E n d i r. Hestur heyrir Þorgeírsbola öskra. (Sögn Friðbjargar Þorsteinsdóttur á Húsavík 1907). Eg var á Isólfsstóðum á Tjörnesi fyrir löngu síðan. Þá var það á laugardags- morgun fyrir páska nálægt sólaruppkomu, að ég fór út í hesthús, sem stóð við vall- argarð, og gaf hesti. Þegar ég var búin að því, en ekki farin úr húsinu, heyri ég 3 mikil nauts-org, hvert eftir annað, og heyrðust þau vera mjög nærri. Hesturinn hætti að éta og horfði með spert eyru út í dyr. Þótt mér flygi fyrs't í hug, að kúm á næsta bæ hefði verið hleypt út, þá var hvorttveggja, að orgin voru nær en svo, og svo vissi ég bráðlega, að þetta átti sér ekki stað. Gömul kona á sama bæ sagði mér, að faðir konu nokkurrar norðan úr sveitum, er var á ferð, hefði haft hinn nafnkunna Þorgeirsbola til fylgdar, en kona þessi að norðan kom í ísólfsstaði um daginn. Jakob Hálfdánarson.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.