Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Qupperneq 14

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Qupperneq 14
108 NÝJAR KVÖLDVÖKUR mjórra, en hér var það orðið svo breitt, að Úlfur greindi naumast fjarlægari bakkann. Hann stóð og virti fyrir sér fljótið og fljótsbakkann, og hann sá að hér var hentugur vetrarsetustaður, og afréð að setjast þar að um hríð. Þar sem hann var staddur, lá brött brekka niður að fljótinu. Brekkan skýldi fyrir hinum bitru austannæðingum vetr- arins. Hér var hentugur staður fyrir skýli. Og hann byrjaði þegar á byggingunni. Honum hugkvæmsist að láta brekkuna mynda bakhlið kofans. Það sparaði vinnu og mundi verða hlýtt; og með því að grafa inn í brekkuna gat hann einnig myndað hluta af hliðunum. Úlfur vann kappsamlega, og að kveldi hins næsta dags var skýlið fullgert. Jarðvegurinn var þarna leirkenndur svo kofaveggirnir voru óvanalega þéttir og hlýir, og Úlfur var hinn ánægðasti. Innanhúss var útbúnaðaurinn einfald- ur. Úlfur lagði nokkra flata steina á gólf- ið, það var eldstæðið, og svo bjó hann sér til lágan bálk úr furugreinum og trjá- laufi með fram einum veggnum. Það var rúmfletið hans. Og þá var því lokið. Með fram öðrum vegg hlóð hann upp viðarbútum til eldsneytis, það var þægi- legt að hafa þá við hendina, þegar hann vaknaði á morgnana, það þurfti einnig að vera vel þurrt. Og í fyrsta sinn, sem hann kveikti upp eld í kofanum, fann hann til meiri vellíð- anar og meira öryggis en áður. Næsta verk Úlfs var að afla sér nægi- legra skinna til vetrarins. Frá morgni til kvölds var hann á veiðum. Það af kjöt- inu, sem var afgangs daglegri neyzlu hans, vindþurrkaði hann og hengdi það svo upp á ræfrið í kofanum. í tómstund- um sínum smíðaði hann sér birgðir af örvum og hnífum úr tinnusteini. Hann festi vellagaða tinnuflís á skaft, og tókst með því að búa sér til hentugri smíðaöxi en áður, en til veiða notaði hann ávallt hj artarhornsöxi. Og svo vaknaði hann einn morgunn við gnýinn af vetrarstorminum; það dunaði í skóginum, og þegar hann leit út var jörð- in hvít af snjó. Veðrið var nístandi kalt, og Úlfur ásetti sér að halda kyrru fyrir í kofanum þennan dag. Þegar hann gáði til veðurs um kvöldið, voru komnir stórh’ snjóskaflar, og kofinn hálfur í fönn, og veðrið var engu minna en áður. Þegar Úlfur vaknaði morguninn eftir, varð hann þess áskynja, að eitt og annað var öðruvísi en vanalega. Hann hélt niðri í sér andanum og hlustaði, en gat ekkert hljóð heyrt. Frá því hann settist að þarna í kofan- um hafði daglega borizt að eyrum hans straumniðurinn frá fljótinu og vindhljóð- ið úr skóginum. Nú var dauðaþögn, kuldi og svarta myrkur. Hann fálmaði fyrir sér og þreifaði eftir eldstæðinu, en rak þá hendurnar í snjódyngju á gólfinu, sem hafði hríðað inn um reykopið. Hann leitaði þá til dyranna, og reif skinnið frá, og rak sig þar á helkaldan snjóinn. Nú varð Úlfi ljóst hvernig komið var — hann var fenntur inni. Hann leitaði sér að trjágrein, og stakk henni í fönnina út úr dyrunum, og reyndi að bora holu gegnum snjóinn, en það reyndist árangurslaust. Fönnin var samanbarin, og hann hafði ekkert annað tæki til moksturs. Hann fálmaði aftur eftir eldstæðinu; sópaði snjónum frá og kveikti upp eld. Það hlýn- aði, en eftir nokkur augnablik var kofinn orðinn fullur af reyk, svo að Úlfur gat varla náð andanum, og nú skildi hann það í einni svipan, að reykurinn, sem ekki komst út, mundi kæfa hann. í flýti kæfði hann eldinn með fönninni. Honum reið lífið á að komast sem fyrst

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.