Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Blaðsíða 6

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Blaðsíða 6
100 NÝJAR KVÖLDVÖKUR ar af þeim, en alltaf heppnaðist honum þó að finna þau að nýju nokkru lengra burtu. Landið fór smáhækkandi, og þar runnu sporin saman við fleiri slóðir, sem komu saman úr ýmsum áttum. Loks urðu þær að djúpum troðningi, svipuðum þeim, er myndazt hafði frá lendingarstaðnum við vatnið hans og inn í skóginri. Hvaðan sem þessir menn voru komnir, sá Úlfur þegar á slóðunum, að þeir hlytu að vera miklu fjölmennari en fjölskyldu- hópurinn hans. Honum leizt ekki á blik- una. Hann þræddi götuna, sem lá nú upp á brekkubrún; þar lagðist hann á mag- ann og skreið varlega þar til hann var kominn svo langt, að hann sá niður hinu- meginn. Þar blasti við augum hans stórt vatn, og beint niður af þeim stað, sem hann var staddur á, gekk mjór og langur tangi út í vatnið. Tanginn var mjög breiður fremst og sýndist mynda eyju í vatninu. Staður þessi var enn byggilegri en hólminn hans, og það var auðséð að þarna var byggð. Milli trjánna gat hann talið að minnsta kosti fimm stór bjálka- skýli. Þau stóðu umhverfis autt svæði, og þaðan lagði talsverðan reyk. Nokkrir karlmenn, konur og börn voru á ferli við kofana. Úlfur færði sig lítið eitt frá göt- unni, því verið gat að einhver veiðimann- anna kæmi á eftir honum á heimleið sinni, og Úlfur kærði sig ekki um að verða á leið hans. Hann fann góðan felu- stað, og þaðan gat hann séð betur yfir byggðina. Honum var hugleikið að vita, hvort þetta fólk væri af hans kynþætti, því honum var kunnugt um, að fleiri en faðir hans höfðu leitað burtu úr átthög- unum sama sumarið. Hann komst að þeirri niðurstöðu, að þetta fólk væri honum alveg óskylt, og mundi reynast honum óvinveitt. Hann sá, að kofarnir voru með öðru byggingarlagi, en því, er hann þekkti — ekki eins hent- ugu að hans áliti. .Þessir menn höfðu heldur enga báta. Þegar Úlfur hafði setið stundarkorn í fylgsni sínu, heyrð'i hann mannamál frá stígnum. Hann sá tvo menn, sem báru dauðan krónhjört á milli sín. Þeir virtust vera í æstu skapi. Þeir fóru svo nærri, að hann heyrði hvert orð, sem þeir sögðu. En hann gat ekki séð þá, því hann þorði ekki að líta upp. Úlfur skildi af samtali þeirra, að þeir höfðu fundið óþekkta ör í hirtinum, sem þeir veiddu, og ræddu þeir með ákefð samskonar efni, eins og Tóki hafði gert heima hjá sér, daginn sem hann sá mannasporin fyrst. Skyldu einhverjir vera hér á ferðalagi eða eiga sér byggð í námunda? Annar maðurinn lét út úr sér hræðilegar hótanir í garð þeirra ókunn- ugu manna, ef þeir kæmu inn í veiðilönd hans. Úlfur fann, að orð mannsins spáðu engu góðu um friðsamlega sambúð í framtíðinni. En Úlfur var ekki í vafa um, hvaðan örin væri. Fyrir tveimur dögum hafði hann skotið henni á þennan sama hjört, en hafði misst hans, og nú hafði þessi ör vakið óþægilegan grun. Mennirnir voru komnir spottakorn nið- ur í brekkuna, og Úlfur sá þá nú vel. Þeir voru stórvaxnir og sterklegir og virtust vera á svipuðum aldri og Tóki, og í engu eftirbátar hans. Vopn þeirra voru að sjá mjög lík þeim, er Úlfur not- aði. Þó veitti hann því eftirtekt, að sá maðurinn, er síðar gekk, hafði fest tinnu- flís í blaðið á hjartarhornsöxinni, í stað þess að eggja það sjálft. Úlfur skildi þeg- ar, að með þessu móti varð öxin betra og öruggara vopn. Þetta skyldi hann hag- nýta sér, þegar heim kæmi. Sólin var að síga til viðar. Tveir aðrir menn komu gangandi eftir vatnsbakkan- um, og Úlfur gat séð alls sjö fullorðna karlmenn á þessum stað.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.