Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Qupperneq 17

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Qupperneq 17
ULFS SAGA 111 skömmu síðar sá hann fimm úlfa koma æðandi út úr skóginum, og þyrpast kring- um inngönguopið, er lá niður að húsinu hans. Undir eins og Úlfur sá úlfana, fleygði hann sér niður bak við jakahrönn, og það- an gat hann séð til úlfanna. Og hann sá hvernig þeir toguðu í skinn- ið, sem fest var fyrir opið, og reyndu að ná því burtu, en þeim tókst það ekki. Og þó að líf hans væri í hættu, stóð honum ekki á sama um litla kjötforðann, sem hann átti í kofanum, því að þegar úlfunum tókst ekki að krafsa skinnið frá, byrjuðu þeir að grafa niður í fönnina meðfram .inngönguo^inu, en þetta gekk þeim erfið- lega og sízt betur en Úlfi, þegar hann var að grafa sig út úr fönninni fyrrum. Og nú gat Úlfur séð að þeir hægðu á sér, og hann fór að hugleiða það, hvernig hann ætti að bjarga sjálfum sér, ef úlf- arnir kæmust á snoðir um hvar hann væri, því að þarna var hvorki tré eða annað fylgsni, og það var ójafn leikur, að vera einn á móti fimm úlfum. Og svo fór eins og hann hafði óttast mest, hann hreyfði sig lítilsháttar, og einn úlfurinn virtist veita því athygli, því að hann sperrti eyrun, og horfði fast í áttina til Úlfs. Svo var eins og hann gæfi hinum úlfunum merki, því að þeir hættu snögg- lega við krafsið, og litu allir í sömu áttina, og svo lögðu úlfarnir allir af stað, og skokkuðu í halarófu beint að jakahrönn- inni, sem huldi Úlf. Það varð ekki komizt hjá orrustu við úlfana, en Úlfur ásetti sér að gefast ekki Upp fyrr en í fulla hnefana. Afstaða hans var að því leyti góð, að úlfarnir urðu að klifra upp jakahrönnina, sem var rúmlega tveggja mannhæða há, og flughál. í flýti stakk hann örvum sínum í beltið, lagði spjótið og öxina á hjarnið fyrir framan sig og beið átekta. Hann mældi fjarlægðina með augunum- Hann ákvað að skjóta, þegar fyrsti úlfur- inn væri í skotfæri; að skjóta fyrr var að tefla á tvær hættur, og þegar sá úlfurinn, sem á undan var, — kom í gott færi, skaut Úlfur. Örin kom í brjóstið á úlfin- um, sem skrækti hátt við og valt dauður á ísinn. Úlfarnir, sem næstir voru hon- um, réðust þegar á hinn fallna félaga sinn og rifu hann í sig. Við þetta fékk Úlfur ráðrúm til að benda 'bogann að nýju. Síðustu tveir úlfarnir hlupu fram hjá fé- lögum sínum, án þess að líta á hræið. Úlfur skaut, og særði þann er á undan var, en ekki mjög hættulega. Sá, sem á eftir var, staðnæmdist snöggvast, en um leið yfirgáfu hinir hræið, og allir snerust þeir að Úlfi. Og ennþá hvein í bogastrengnum, og enn féll eitt villidýrið dautt niður. Úlfur fékk nú ekki svigrúm til að skjóta fleiri skotum, því að fremsti úlfurinn var að klifra upp á jakabrúnina. Úlfur greip spjótið og rak hann í gegn, en í sama vet- fangi réðist sá er síðastur var á hann. Úlfur hafði ekki tíma til að beygja sig eft- ir öxinni, því að gapandi kjaftur dýrsins ógnaði honum. Úlfur þreif til hans með heljarafli, hóf hann á loft, og þeytti hon- um niður af ísbrúninni- Þegar úlfurinn kom fótum fyrir sig, var hann lítið eitt haltur, en hugði þegar til áhlaups aftur, ásamt þeim er særzt hafði áður. Nú hafði Úlfur náð öxinni, og stóð nú aftur betur að vígi, og þegar særði úlfurinn klifraði upp á jakann, féll hann dauður niður með klofinn hausinn. Og nú var seinasti úlfurinn eftir. En þegar hann sá ófarir félaga sinna, vafð hann hræddur og hljóp í burtu eins hart og hann gat og inn í skóginn. Úlfur skaut á eftir honum, en hitti hann ekki. Fjórir úlfar lágu þarna í valnum, það var vel af sér vikið fannst Úlfi, og hann var ánægður með dagsverkið. Hann fló af þeim skinnin og flutti þau með sér til

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.