Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Blaðsíða 23

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Blaðsíða 23
EINN Á HEIMSKAUTAJÖKLINUM 117 sem ég svaraði með já og nei, og svo var skeytasendingunni lokið. Þetta kveld var ég að því kominn að tapa mér. Eg var sárþjáður og hugsunin um, að ég væri kominn að dauða, vildi ekki yfirgefa mig. Samt sem áður tókst mér að koma niður svolitlu af mjólk og kexi, og þegar ég vaknaði næsta morgun, leið mér ögn skár. Um miðaftansleytið hafði ég rænu á að draga upp grammó- fóninn og leika á hann 3 lög. Raddir hans hertu mig ofurlítið, og innra í mér hvísl- aði einhver rödd: það er ekki enn úti um þig. En björgunarmöguleikinn er aðeins einn á móti hundrað, en samt er þar von. Næsti hálfi mánuðurinn leið án nýrra tíðinda. Byrd hrestist lítilsháttar. Með ósegjanlegu þreki og viljafestu tókst hon- um að miðla hinum litlu kröftum sínum milli þeirra starfa, sem nauðsynlegust voru, svo að hann fengi haldið lífi. Hann leitaðist við að halda frá sér öllum óþægi- legum hugsunum og einungis hugsa um hið bjartasta og þægilegasta í lífinu, og hvernig hann skyldi lifa, þegar heim kæmi. Eitt með örðugustu störfunum var skeytasendingin, bæði krafði undirbún- ingur hennar meiri líkamlegrar orku en hann réð yfir, og auk þess varð hann að gæta þess vandlega, að koma ekki upp um ástand sitt, því að hann var alltaf jafnstaðráðinn í því að hætta ekki lífi fé- laga sinna í björgunartilraun. Lesið gat hann ekki vegna höfuðverkjar og eins hins, að hann ekki treysti sér til þess að dæla gaslampann, sem gaf bezta birtu, þeirra Ijósfæra, sem hann hafði. En 17. júní varð hann á ný fyrir eitrunaráfalli, þegar hann var að fást við mótorinn. Hann varð engu minna veikur en fyrra skiptið. Dagarnir næstu á eftir, segir Byrd, voru hinir erfiðustu. Eg reyndi að halda áfram innanhúss athugunum og störfum, en þessi skyldustörf virtust ekki standa í nokkru sambandi við veruleikann. Eg var eins og tvískiftur. Meðan annar hlutinn fékkst við störf sín, var líkt og hinn at- hugaði hann frá fleti mínu. Innri rödd hvíslaði stöðugt að mér: Þú getur ekk|j haldið svona áfram, það er í rauninni ekki þú sjálfur, sem ert að starfi, þú ert búinn að vera. Hinn 28. júní fékk ég undrunarverðar fréttir frá Litlu-Ameríku. Doktor Poulter, elzti vísindamaðurinn, stakk upp á að senda flokk manna til mín, til að athuga stjörnuhröp, sem að líkindum yrðu snemma í ágúst. Eg ætlaði varla að trúa mínum eigin eyrum, þegar orðin kváðu við í heyrnartólinu. Þá spurði Poulter: „Jæja, hvernig lýst þér á það“. Eg var óráðinn. Aðeins einu sinni fyrr, hafði nokkur maður reynt að ferðast í nætur- myrkri Suðurheimskautslandanna, það var leiðangur Scotts eins, sem það hafði reynt. Þótt allt gengi upp á það bezta, hlaut það samt að verða miklum erfið- leikum bundið að komast frá Litlu-Ame- ríku til jökulstöðvarinnar, og undir eng- um kringumstæðum máttu slys koma fyrir. Að lokum sagði ég Poulter, að þeir skyldu fara stuttar reynsluferðir og láta mig vita árangurinn. En um leið og ég sagði þetta, vissi ég það, að ég mundi ekki hafa viljaþrek til að banna þeim að fara. Eg hafði þá þolað of mikið, til þess að ég mundi varpa nokkru hálmstrái frá mér. Allan seinnipartinn lá ég og hugsaði um það, hvort unnt yrði að fylgja slóð- inni frá haustinu. Vegna sprungnanna í ísinn, var leiðin krókótt. Leiðin hafði í marz verið mörkuð með flaggstöngum með 6 mílna millibili, en þær gátu hafa fokið niður, svo að allar líkur bentu til, að stórar eyður væru á milli þeirra hing- að og þangað á þessari 123 mílna leið. Eg reyndi að hugsa hlutlaust um málið, og erfiðleikarnir á hinni fyrirhuguðu ferð virtust mér verða stöðugt meiri og meiri,

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.