Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Síða 31

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Síða 31
AR AB AHÖFÐIN GINN 125 hún frámunalega tauganæm — eirðarlaus og óróleg, og hugur hennar allur í upp- námi. Nú var hún á hans valdi á ný, alein og varnarlaus. Hvernig myndi hann nú verða? Hún tók höndum um hné sér og hallaði sér aftur á bak á koddana, öðru hvoru hlustandi með kvíðablandinni eft- irvæntingu og hélt þá niðri í sér andan- um og hleraði af öllum mætti, en kveið þó fyrir að heyra það, sem hún hlustaði eftir. Hún þráði hann af allri sál sinni, — en kveið þó samtímis komu hans. Hann hafði breytzt svo einkennilega mikið, að það kom fyrir, að henni virtist, að það hlyti að vera ókunnugur maður, sem nú kæmi aftur. Hún litaðist kvíðafull um í herberginu, sem áður fyrr hafði hýst hamingju hennar og kvalir. Hún hafði aldrei áður fundið til óróleika og tauga- veiklunar, en í kvöld hamaðist hug- myndaflug hennar eins og fælinn hestur —- það var, eins og loftið væri þrungið rafmagni, er hreif hinar afar næmu taug- ar hennar. Ljósbjarminn frá litla lampanum féll í hring utan um rúmið, en hinn hluti her- bergisins lá í rökkurskugga, og úti í horn- unum virtist vera fullt af furðulegum skuggum, er nálguðust annað veifið, en fjarlægðust svo á ný. Dyratjöldin og hús- gögnin, sem hún var svo þaulkunnug, tóku skringilegustu myndbreytingum, sem hún starði óttaslegin á, unz hún að lokum rak upp dálítinn gremjulegan hlátur og strauk sig yfir ennið. Var nú ástin, sem áður hafði gerbreytt henni, einnig að gera hana að bleyðu? Var skynsemi hennar þorrin, runnin inn í þessa einu regin-sterku ástríðu, sem hertekið hafði sinni hennar og sansa? Hún skildi svo vel breytingu þá, sem °rðin var á henni. Hún hafði aldrei litið sérlega stórt á sjálfa sig, hafði aldrei -reynt að taka í taumana vð þrjózku sína og drambsemi. Hugur hennar hvarflaði aftur yfir þessa síðustu mánuði, er höfðu gerbreytt öllu lífi hennar. Hve það var undarlegt allt saman! Hin síðasta dæma- lausa uppáfynding hennar, sem hún hafði keypt svo dýru verði, hafði verið eðlileg afleiðing af yfirlætisfullri tilhneigingu hennar til að fara sínu fram, hver sem í hlut átti, og fylgja dutlungum sínum í orði og verki beint upp í opið geðið á öðrum, hvað sem þeir sögðu. En hér hafði hún rekið sið illilega á: Með ennþá rótgrónara yfirlæti og stálvilja, er var miklu sterkari en vilji hennar sjálfrar, hafði Ahmed Ben Hassan tamið hana, á sama hátt og hann tamdi hina glæsilegu gæðinga sína. Harðhent og miskunnar- laust, án allrar tilslökunar, hafði hinn reginsterki stálvilji hans beygt hana til algerðrar undirgefni. Hún hugsaði til þess, hve hún hafði hatað hann með öllu sínu ástríðuþrungna og stórlynda eðli, unz hatur hennar breyttist í ást, er var engu síður sterk og ástríðuþrungin, en hatrið hafði verið. Henni var ekki ljóst, hvers vegna hún unni honum — hún hafði aldrei getað rakið tildrög ástríðu þeirrar, er hafði gagntekið hana, svo að hún skyggði á allt annað; en henni skild- ist það samt í undirdjúpum eðlis síns, að það var eigi aðeins hinn fallegi, sterki maður, sem hún unni, heldur margt annað og margfallt meira í fari hans. Hún unni honum í blindni og hugsunarlaust, til- heyrði honum með sál og líkama, og breyting sú, sem orðið hafði í sálarlífi hennar, hafði einnig sett augljós merki í ungt andlit hennar. Yfirlætissvipurinn og drambsamt augnaráðið, sem hafði ein- kennt hana frá æsku, hafði nú vikið fyrir þráheitri blíðu ástfanginnar konu, hinn litli þverúðarfulli munnur hafði misst sinn háðslega boga — og með breyting- um þessum var hún miklu fegurri, en hún hafði verið nokkuru sinni áður. En

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.