Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Side 32

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Side 32
126 NÝJAR KVÖLDVÖKUR þrátt fyrir ást sína óttaðist hún hann ennþá með sama lamandi kvíða og á fyrstu dögum fangavistar sinnar. Þetta var algeriega líkamlegur ótti, sem aldrei hafði yfirgefið hana, jafnvel ekki hinar sæluþrungnu vikur, rétt áður en Saint Hubert bar að garði. Og nú bættist við kvíði sá, sem var öllu öðru verri, og stöð- ugt lá á verði í innstu fylgsnum sálar hennar, svo að hún stundum varð alger- lega eirðarlaus og ráfaði fram og aftur um tjaldið eins og villidýr í búri. Það var eins og hún hugsaði sér að komast undan þeim ógæfunnar skugga, sem yfir henni vofði — hinum angistarþunga kvíða fyrir þeirri stund, er hann væri orðinn leiður á henni. Þessi hugsun var henni seigpín- andi sálarkvöl, og hún reyndi nú sem ætíð endranær, að bægja henni frá sér, en hún kom stöðugt á ný og ofsótti hana eins og ásækin sending. Sí og æ hin sama: Hann hafði ekki sótzt eftir henni af ást; hér var hvorki um neina dýpri né hærri tilhneigingu að ræða, heldur aðeins löngun til að svala hverfulli ástríðu hans. Hann hafði séð hana, girnst hana og tek- ið hana, og er hún var komin algerlega á hans vald, hafði það skemmt honum, að brjóta þverúð hennar og beygja vilja hennar og stolt rækilega. Hún skildi þetta allt saman svo undur vel! Hann hafði verið hreinskilinn og hafði aldrei látist elska hana. Þegar hann var í góðu skapi, átti hann til að vera blíður og vingjarn- legur, en vinsemi er ekki ást. Hún hafði aldrei séð þau svipbrigði í augum hans, sem hana dreymdi um og þráði af hjarta að geta vakið. Blíðuatlot hans gátu verið heit og ástríðuþrungin eða ör og kæru- laus, allt eftir því í hvaða skapi hann var þá stundina. Hún vissi ekki, að hann unni henni. Hún hafði ekki setið við sjúkrabeð hans, er sárasóttin hafði lagt honum hin eldheitu orð á varir; hún hafði eigi heyrt það, sem Saint Hubert heyrði, og er hann var orðinn frískur á ný, hafði kuldi hans og hlédrægni aðeins styrkt hana í grun sínum, og hún gat eigi hugsað sér neina aðra skýringu á þögn hans og kuldalegri framkomu hans, og því, hve bersýnilega hann sneiddi hjá henni. Hann var orðinn leiður á henni og sat nú um tækifæri til að losast við hana, Henni fannst hún hafa vitað þetta vik- um saman, en það var fyrst í kvöld, að hún hafði haft hugrekki til að játa það hreinskilnislega fyrir sjálfri sér. Það hlaut að liggja þannig í því! Allt benti i þá átt. Hún stundi sárt og faldi andlitið undir handlegg sér. Hann var orðin'n leið- ur á henni, og þar með var öllu lokið fyr- ir henni, og með örlagatrú þeirri, er hún hafði kynnst í eyðimörkinni og smám- saman orðið fyrir áhrifum hennar, sætti hún sig við það, sem eigi varð komist hjár og sá að það var vonlaust að spyrna á móti því. Hún fór að velta því fyrir sér, hálf sljó í huga, hvað nú myndi verða af henni. I rauninni var henni alveg sama um það, úr því hann kærði sig ekkert um hana framar. Hið fyrra líf hennar lá svo langt að baki — eins og hún hefði lifað því £ öðrum heimi. Það var aðeins hérna í eyði- mörkinni hjá Ahmed Ben Hassan, að hún hafði vaknað til lífsins. Hér hafði hún lært að þekkja lífið eins og það var, sælu þess og kvöl. Eyðileg og ægilega ógnþrungin lá framtíðin nú framundan henni, og hún sneri sér frá henni og andvarpaði, þungt og sárt. Allar hugsanir hennar snerust um hann og hann einan. Hvernig ætti hún að geta afborið lífið án hans? Hún furðaði sig á því með sljóum huga, að hún skyldi ekki hata hann fyrir allt það, er hann hafði gert henni, en samt megn- aði ekkert af því að drepa ást hennar. Hún myndi aldrei iðrast! Ætíð myndi hýn geyma í huga sér endurminningarnar um

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.