Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Qupperneq 37

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Qupperneq 37
ARAB AHÖFÐIN GINN 131 þess til, að hann væri að tína borðbúnað- inn saman og raða honum á bakkann til að fara með hann út. Svo heyrði hún rödd hans, lítið eitt háværari en áður: „Monseigneur désir d’ autre chose?“ Höfðrnginn hlaut að hafa gefið honum eitthvert merki þess, að hann óskaði einkis frekar, þar eð hún heyrði ekkert svar. „Bon Soir, monseigneur“. „Bon Soir, Gaston“. Díana dró andann hratt og djúpt. Með- an maðurinn var þarna inni, virtist lienni tíminn alveg endalaus — og nú óskaði hún þess, að hann hefði ekki farið. Hvað — hvað myndi nú ske? Nú var hún ein- sömul með honum í fyrsta sinni, eftir að Saint Hubert var farinn, alein og ein- mana. Á milli þeirra var aðeins eitt for- tjald, en það fortjald þorði hún ekki að draga frá og ganga inn til hans. Hún þráði hann, þráði að fara til hans, en áræddi það ekki! Ást hennar'bauð henni að vera hugrökk og ganga inn til hans — en svo kom angistin og kvíðinn og fjötr- uðu hana þar sem hún var komin, og hún varð yfirsterkari í svipinn. Hún titraði öll og andvarpaði þungt, er hún minntist eins kvölds hinna tveggja sælumánaða, er svo skjótt höfðu orðið aðeins draum- ur einn — dásamlegur draumur. Hann hafði komið seint heim, og er Gaston var farinn frá honum, hafði hún læðst inn til hans rjóð og heit í kinnum og bjarteygð eftir væran svefn, og hann hafði sett hana á hné sér og komið henni til að bragða á'arabiska kaffinu, sem hún hafði andstyggð á, og hann hafði skemmt sér eins og barn yfir grettum hennar og begl- um. Og meðan hún hvíldi í fangi hans með höfuðið hvílandi á öxl hans, hafði hann sagt henni frá viðburðum dagsins á ferðalagi hans til annarra tjaldbúða, hann spjallaði um menn sína og hesta, og hafði síðan smámsaman vikið tali sínu að fjölda einstakra atriða, er snertu framtíð hans — í raun og sannleika hafði þetta verið trúnaðarsamræða eiginmanns við konu sína, er samtímis var góður vinur hans og félagi. Sú hugsun hafði líka hrif- ið hana með sársaukablandinni gleði, svo að hún hafði skolfið í faðmi hans, og hann hafði þá staðið upp í skyndi skelk- aður og sagt, að henni væri kalt, og síðan hafði hann lyft henni upp á armi sínum, svo að kinn hennar hallaðist upp að kinn hans, og borið hana inn í innra herbergið. Það sem hún þá hafði gert, gat hún með engu móti gert nú. Hann virtist nú svo einkennilega fjarlægur og ókunnug- legur, svo gersamlega ólíkur manni þeim, sem hún hélt, að hún væri farin að skilja. Hún var algerlega rugluð, og fanh til ægilegrar þreytu, og ruglingslegar hugs- anir fylltu höfuð hennar, er hún hugsaði til framtíðar þeirrar, er blasti við henni eins og hrikaleg vofa. Hún áræddi ekki að hugsa neitt frekar, átti aðeins eina ósk og þrá: að fá að hvíla í faðmi hans og gráta út sorg sína og kvíða við barm hans. Hún hneig niður á gólfið og faldi and- lit sitt í rúmteppinu. „Ó, Guð minn góður! Gefðu mér ást hans!“ bað hún hvíslandi og endurtók bæn sína upp aftur og aftur, unz endur- minningin um nótt eina fyrir mörgum mánuðum síðan, er hún á þessum sania stað hafði beðið Guð að láta bölvan sína hrína á honum, rann svo skýrt upp í huga hennar, að hún hr-ökk við og titraði af ótta. „Ég meinti það ekki!“ kjökraði hún. „Ó, Guð minn góður! Ég meinti það ekki! Eg vissi þá ekki — taktu það aftur — ég meinti það ekki!“ Hún grúfði andlitið niður í rúmteppið og reyndi á þann hátt að kæfa ekkann. Enn var kyrrt og hljótt í hinu herberg- 17*

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.