Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Blaðsíða 41

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Blaðsíða 41
AR ABAHÖFÐIN GINN 135 irgefið fólk mitt, og — ég er of mikill Ar- abi til þess að geta látið þig fara ein- samla í ferðalag. Það yrði óbærilegt líf fyrir þig. Þú meinar, að sökum þess að þú elskar mig núna — og Guð einn má vita, hvérnig þú getur elskað mig, eins ■ og ég hefi þó verið þér! — En sá dagur og tími mun koma, að þér verður ljóst, að ást þín til mín getur ekki bætt þér það upp, að þú verður að búa hérna á eyðimörkinni. Og auk þess er óhugsan- legt, að þú getir gifzt mér. Þú veizt, að ég er ekki fær um að lifa lífi mínu við hlið virðingarverðrar eiginkonu. Þú veizt, hve líferni mitt hefir verið bölvað og sví- virðilegt. Endurminningin um það myndi alltaf standa á milli okkar — þú myndir aldrei geta glejunt því, aldrei geta borið traust til mín. Og jafnvel þótt þú gætir gleymt og fyrirgefið — af miskunnsemi þinni — þá veiztu samt, að það er ekki -auðvelt að búa með mér. Þú þekkir stjórnlausa skapgerð mína, þegar það er eins og einhver djöfull hlaupi í mig, ég hefi ekki hlíft þér til þessa og myndi ef til vill heldur ekki gera það framvegis. Held- urðu virkilega, að ég myndi þola að sjá þig verða að hata mig meira ár frá ári, eftir því sem tímar liðu? Nú finnst þér ég vera hjartalaus og grimmur, en ég er að hugsa um, hvað þér sé fyrir beztu í framtíðinni. Binn góðan veðurdag munt þú hugsa til mín með vinsemd sökum þess, að ég hafði þrek til að láta þig fara. Þú •ert svo ung, og einmitt nú áttu að byrja á lífinu. Þú ert enn nógu sterk til þess að geta útmáð úr lífi þínu endurminninguna um þessa síðustu mánuði — að gleyma fortíðinni og lifa aðeins í framtíðinni. ■ Enginn þarf nokkru sinni að vita neitt það. Það er engin hætta með - mann- °rð þitt. í eyðimerkurkyrrðinni gleymist ■allt. Mústafa Alí er í mörg hundruð enskra mílna fjarlægð, en þó eigi svo langt undan, að hann áræði að segja nokkuð. Og mína menn þarf alls eigi að nefna: þeir tala og þegja eftir því, sem ég óska. Þá er aðeins Raoul eftir, og hon- um getum við treyst. Þú verður að fara heim aftur til lands þíns og þjóðar, til þess lífs og lifnaðarhátta, sem þú hefir vanist, en ég á enga hlutdeild í né á þar heima — og innan skamms mun allt þetta virðast þér aðeins sem ljótur draumur". Svitinn spratt út á enni hans, og hann kreppti ósjálfrátt hnefana af áreynslu þeirri, er það kostaði hann að stilla sig og tala á þennan hátt, en hún faldi and- litið í höndum sér og leit ekki á hann. Hún heyrði aðeins hina djúpu, þýðu rödd hans, er kvað upp örlög hennar og lokaði fyrir henni dyrum hamingjunnar, rólega og næstum því kæruleysislega. Hún varð gagntekin af skjálfta frá hvirfli til ilja. „Ahmed! Ég get ekki far- ið!“ hvíslaði hún. Hann leit einkennilega á hana og ná- fölnaði; svo kippti hann höndunum frá andliti hennar. „Guð minn góður! Þú meinar þó ekki — ég hefi þó ekki — þú ert þó ekki —“ stundi hann upp hásum rómi og horfði áhyggjufullur á hana. Hún gizkaði á, hvað hann átti við, og blóðroðnaði. Freistingin til að ljúga að honum, og láta svo kylfu ráða kasti um framtíðina, varð henni nær því ofurefli. Aðeins eitt lítið orð — og hún myndi aft- ur hvíla í faðmi hans — en svo seinna? — Óttinn við það, er síðar kynni að verða, olli því, að hún þagði. Hún fölnaði aftur og hristi höfuðið þögul og alvarleg. Hann sleppti höndum hennar og andaði léttilega og þerraði svitann af enni sér. Svo lagði hann hönd sína á herðar henni og ýtti henni blíðlega á undan sér í áttina yfir að hinu herberginu. Sem allra snöggvast þybbaðist hún ofurlítið. Augu hennar voru full af örvæntingu, og hún leitaðist við að mæta augum hans, en hann forðaðist það og leit undan, og

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.