Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Qupperneq 47

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Qupperneq 47
BÓKMENNTIR 141 þekkja F. H. B. Þeim er það fullljóst, að hann er enginn flysjungur og svo dulur maður um eigin hagi, að hann mundi manna sízt fara að skýra frá hlutum sem ekki hefðu raunverulega fyrir hann bor- ið, þá er hann einnig maður athugulli en almennt gerist, og veitir það einnig sög- unum aukið gildi. Hitt verður síðan hlut- verk annarra, að leita skýringar á fyrir- brigðum þessum. Sögurnar eru allar vel sagðar, svo að lesandinn lifir víða með höfundinum at- burði þá, sem frá er skýrt, enda er það vel kunnugt að F. H. B. hefir gott vald á máli, bæði bundnu og óbundnu. Eg býst við að menn meti sögurnar misjafnt, en merkilegastar þykja mér Verkfærakistan, Óvenjulegur andstœðingur og Svi-pleg lest, þótt allar séu þær sín með hverjum hætti. Verkfærakistan lætur menn gruna ótalmargt, sem hvílir þar að baki atburð- unum. Óvenjulegur andstæðingur mundi hafa orðið ein hin rammasta draugasaga í fornum stíl, ef þjóðtrúin og fjarlægðin hefðu farið um hana höndum og sagan gerzt fyrir einum eða tveimur mannsöldr- um. Svipleg lest er einhver hin einkenni- legasta sýn, sem ég minnist að hafa heyrt getið. Það mun erfitt að segja, hvort þarna hafi raunverulega svipir hins slátraða fjár verið á ferð, eða einungis táknræn mynd, sem sýnt hefir hver þjáning og ógn hefir fylgt dauða þess, en margt getur manni dottið í hug í sambandi þar við, en ef slíkur óhugnaður stendur í sambandi við slátrun dýra, sem þó er leitazt við að framkvæma á sem mannúðlegastan hátt, hvílíkar ógnir kynnu þá ekki að leynast í lofti á þeim slóðum, sem þúsundir manna eru brytjaðir niður í heiftarhug, á vígvöllum styrjaldanna. Mörgum mun þykja gaman að sjá það í kveri þessu, að hinn alkunni Þorgeirs- boli skuli hafa flutt sig til Ameríku og leikið þar bellibrögð sín jafn rösklega og hér norður á Islandi. Það er trúa mín, að þetta litla kver F. H. B. eigi vinsældum að fagna, enda á það slíkt fyllilega skilið. Akureyri 17. september 1939. Steindór Steindórsson frá Hlöðum. Steingrimur Matthíasson: Frá Japan og Kína. Bókaútgáfan Edda. Prentverk Odds Björnsson- ar. Akureyri. 1939. Fyrirsögn bókar þessarar gefur ekki al- veg rétta hugmynd um innhald hennar. Ferð til austurlanda hefði verið heppi- legri titill, því að bókin er frásaga höf- undarins um ferð frá Kaupmannahöfn um Cardiff í Englandi, þaðan suður Mið- jarðarhaf og gegnum Suesskurð til Ceyl- on; þaðan austur Bengalskahaf og suður Malakkasund til Singapore, norður með Kínaströndum til Honkong; þaðan til Port Arthur og austur til Japan og heim aftur um Singapore, Ceylon, Suesskurð, Mið- jarðarhaf og til Le Havre í Frakklandi og þaðan til Kaupmannahafnar. Það var 27. okt. 1903, sem höfundurinn lagði af stað í ferð þessa frá Kaupmanna- höfn og til Kaupmannahafnár kom hann aftur 3. maí árið eftir. Hann var þá að- eins 27 ára gamall, og segir hann í inn- gangi að ferðasögunni að sig hafi langað til Austurheims frá því hann var barn að aldri, að hann heyrði unga og fallega stúlku syngja lagið og orðin: „Til austur- heims vil ég halda“. Skipið, sem hann fór með, hét Prins Valdemar og var hann ráð- inn skipslæknir. í þessari ferðasögu lýsir Steingrímur löndum, jurtagróðri, dýralífi, sjúkdómum, trúarbrögðum, vinnubrögð- um og háttum manna og þjóða, sem hann sá og kynntist. í bókinni er því feikna mikill fróðleikúr. En hún er skrifuð af eldmóði þeim, lífsfjöri og gamansemi, sem

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.