Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Page 49

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Page 49
TÍU ÁRUM SEINNA 143 sem tíu ár — sagði hann svo. — Við höf- um hyllt árið sem er að koma, án þess að nokkurt okkar renni grun í, hvað það muni færa okkar — ef til vill iðrumst við þess seinna meir, að hafa tæmt þessa skál. — Hvers vegna svo sem? spurði Lisa. — Sennilega vegna þess, að á þeim rtíma verðum við búin að glata hugsjón- um okkar og trúnni á lífið, — svaraði Zhann. — Það væri synd að segja, að þú litir björtum augum á tilveruna, — sagði Molly. — Það geri ég kannske ekki — en ég hefi á réttu að standa! Mennirnir vænta hins bezta af framtíðinni, vegna þess, að óhöpp og mistök liðnu áranna verða ekki aftur tekin. Þeir vona, að með góðum óskum og áformum geti þeir breytt framtíðinni til batnaðar. — Heldurðu ekki að menn geti það líka? sagði Molly brosandi. -—• Ef til vill geta menn það, •— en gera menn það? Hugsaðu um hvernig mörg góð tækifæri þú hefir látið ganga þér úr . greipum, og hve mörgum dýrmætum . stundum þú hefir eytt til ónýtis, þessi fáu ár, sem þú ert búin að lifa, Molly — og alveg eins munt þú eyða lífi þínu eft- irleiðis. — Nei, það er skapgerð og eðlis- far mannsins, sem skapar framtíð hans — • og — eðli sínu og hæfileikum geta menn — því miður ekki breytt. — Það er þó sorglegt að hlusta á þig, lagsmaður, — sagði Codrik. — Áramótin eru alltaf sorglegur at- burður! hélt Páll áfram, jafn alvarlegur og fyrr. Þarna horfir maður á sjálfan sig og vini sína hafa oltið þó dálítinn spöl undan brekkunni árið sem leið — og niaður reynir að hughreysta sjálfan sig: Næsta ár skulum við þó komast eitthvað ‘^PP á við — en það bara skeður aldi'ei! —JÉg vil nú bara vona, að það sé þó ekkert okkar enn á þessum vegi glötun- arinnar — við, sem erum tæpast komin af barnsaldri — greip nú Guy Hamilton fram í. Við skulum talast við að tíu ár- um liðnum. Þá verðum við færari um, að dæma um þessi mál! — Já, hrópaði Lísa áköf. — Þetta er ágæt hugmynd. Við skulum hittast hér öll sömul, á þessum sama stað, að tíu ár- um liðnum! Þá getum við fengið að vita, hvort Páll eða Guy hafa rétt fyrir sér! Við skulum halda upp á áramótin 1938! Enginn nema Lísa gat fengið svona hugmynd í höfuðið, en allir tóku henni fegins hendi! — Þá segjum við það! sagði Guy Ham- ilton. — Við hittumst hér, við þetta borð eftir tíu ár! Þau okkar, sem þá verða gift, taka með sér mennina sína og konur! Og sá okkar, sem þá verður efnaðastur, borg- ar brúsann! Lofum við þá þessu — öll! — Ekki held ég að ég komi! sagði Páll, sneri glasinu sínu hugsandi milli fingr- anna. Hvers vegna ekki? hrópuðu þau öll ein- um munni. — Eftir tíu ár? Þá verðum við öll á fertugsaldri — höfum sennilega skift um skoðanir, vini og allt viðhorf til lífsins, og eigum enga samleið lengur. — Ekki get ég skilið það! Við sem er- um einmitt svo góðir vinir, sagði Codrik. — Já, einmitt þess vegna efast ég um, að við verðum það eftir tíu ár! — Ó, Páll! þú verður að lofa að koma! sagði Lísa, og lagði hendina á handlegg hans. — Ég get ekki neitað þér um neitt — sagði hann. — Ég skal koma! Yfirþjónninn kom nú að borðinu, beygði sig yfir Guy, og sagðist vona, að allt hefði verið eins og þau óskuðu. — Ágætt! svaraði Guy. — Og við vilj- um gjarnan biðja um þetta borð aftur, á gamalárskvöld — að tíu árum liðnum!

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.