Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Blaðsíða 25

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Blaðsíða 25
N. Kv. liann sveigði gönguprikið inn á milli riml- anna á veröndinni. „Ævinlega er sjálfsagt að eg sýni áhuga á og leggi ráðin á með allt, sem þið stingið upp á,“ s-varaði ungfrúin og leit aftur á i)laðið, sem hún var að lesa í. ,,Já, þér eruð nú einu sinni og eigið líka að vera lífið og sálin í þessu sannkallaða dauðraríki," hélt stúdentinn áfram, um leið og hann hengdi hvítu stúdentahúfuna sína á stafinn og sneri lienni á endanum á hon- um eins og snældu. „Salti hafstraumurinn frískar upp mollu- lega firðina okkar," greip nú hinn stúdent- inn, sem liingað til hafði ekkert til málanna lagt, fram í. „Osköp eruð þér orðinn háfleygur og skáldlegur," mælti ungfrú Kruse hlæjandi. „Ojá, en þetta eru nú því miður lánaðar fjaðrir. Þér munið vonandi eftir kvæðinu lians Björnsons?“ ,,A nú aftur að fara að reyna mig í bók- menntasögunni? Eg er þó oft búin að segja yður það, að eg gef mig eingöngu við hljóð- færaslætti og söng.“ „Já, en þér kannizt þó vonandi við skáld- ið Björnstjerne Björnson?“ „í dag er það Björnson, á morgun Werge- land eða Ibsen. Yfir liöfuð hafið þið alltaf jressi skáld ykkar á milli tannanna. Nei, þá fylgi eg ekki með, en Beethoven, Mozart og Orieg, ]tað eru uppáhalds rithöfundárnir minir.“ „Ojá, en rithöfundar sem þér eruð ekki alltaf að stagast á.“ „Nei, egslepp nú blessunarlega frá því, — en þarna koma yndislegu dönsku börnin!“ Ungfrúin stóð upp. „Postulínsbrtiðurnar!" hrópaði stúdent- inn í gremjuróm. „Einnig tilvitnun?" kastaði hún fram, um leið og hún í flýti hljóp niður stigann út á grasvöllinn, þar sem hinar ljósklæddu, ungu meyjar stóðu með brúðuvagnana sína. „Geturðu talað norsku í dag, yndislega 63 liðrildið mitt?“ spurði *ungfrú Kruse hina eldri. ,,Já, en þú talar sjálf næstum því hreina dönsku; þú liefur \íst gengið í ágætan skóla," svaraði barnið og sneri þannig eigi svo lítið á ungfrúna. „Og til hvers langar þig nú mest í dag, Dagmar?" spyr ungfrúin. „Að aka í yndislega vagninunt þarna," svaraði barnið. KI. 1 var vagn stóreignamannsins daglega o o o O sendur til lraðstaðarins tii að sækja hann. Ungfrú Kruse hafði rækilega veitt eftirtekt hinum lipra, létta, yndislega, skrautlega vagni og fögru, brúnu hestunum, sem fyrir ’lionum gengu, og þá, svona í laumi, eigi síð- ur eigandanum, er hann ók af stað og leit um leið upp á svalirnar og kvaddi. Þá gætti hún þess jafnan, að sitja út við grindurnar, til þess að láta sem mest á sér bera og ýmist studdi hönd undir kinn á grindunum eða hún laut út fyrir þær, svo sem væri hún að mæna út á hafið. En hann festi aldrei séi'- staklega augun á henni, og tók eigi fremur tillit til hennar en t. d. gömlu frú Henrik- sen, er máttlaus og aflvana sat þar í völtu- stólnum sínum. Þetta fannst ungfrúnni eigi bera mjög vott um smekkvísi og ásetti sér því beinlínis að þrýsta honum til að veita sér nokkru meiri athygli. Hún var nú svo heppin í þetta skipti, að dönsku telpurnar koinu inn á grasflötina úm sama leyti og vagninn frá herragarðinum, og hún ásetti sér að leika þarna við telpurnar, er hann tæri burt og þá varð eigandinn nauðugur viljugur að kveðja hana sérstaklega! — Allt var með ráði gert. „Eða heldur þú að eg geti setið á hestin- um, eins og á hestinum í Tivoli?" spurði barnið. „Nei, það máttu ekki, Dagmar," svaraði ungfrú Kruse, um leið og hún tók barnið ,í handlegg sér og hljóp dansandi um völlinn með hana. „Dagmar litla vill heldur aka í vagnin- ÖLDUKAST
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.