Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Blaðsíða 42

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Blaðsíða 42
80 DYVEKE N. Kv. höln, þegar eg birtist þar í nýja stássinu mínu. Svo verð eg auðvitað að segja yður frá hjóriavígslunni, sem fór fram með svo mik- ílli vegsemd og umsvifum, að þó að drottinn sjálfur liefði stígið niður af himni og kvong- azt, jrá hefði sú athöfn varla getað orðið veg- legri. Brúðurin er ekki lagleg. Þér megið segja frænku ntinni, Dyveke hinni fögru, að hún þurfi engan veginn að óttast samkeppn- ina við hana. Við hlið hennar stóð Karl prins, sem er aðeins fimmtán ára gamall, og ríkisstýra Niðurlanda, frú Margrét, sem er svo fráneyg, að mér datt í hug ástkær frænka mín á Hvíteyri. Þau stóðu öll undir tjald- hitnni af rósasilki, og meðan jrau voru þar, komu Jreir Slésvíkurbiskup og Cambray- biskup, senr heitir Jakob af Broy of er víð- frægur fyrir að eiga hundrað fri-Ilur, en þær voru nú samt ekki með í förinni, og hefði þeim þó rétt litist á hann ef þær hefðu feng- ið að sjá hann í síðkápunni úr rauðu pelli og með gullbryddingar bæði að ofan og neð- an. Svo spurði Godske biskup Elísabetu prinsessu, hvort hún vildi ganga að eiga Kristján Danakonung, og jm að jtað mál væri skellt og fellt fyrir löngu — og jaað enda þótt enginn hefði spurt hennar ungu náð um það — Jaá sneri hún sér til föðursystur sinnar, ríkisstýrunnar, og Karls bróður síns og ráðgaðist um við þau, en þegar þau höfðu gefið samþykki sitt, svaraði hún biskupnum játandi. Þá spurði biskupinn frá Cambray hana sömu spurningar, og eg hygg hún hafi líka svarað játandi í það skipti, þó að eg heyrði það ekki. Síðan spurði hann herra Mogens, hvort hann, fyrir hönd konungs, \ ildi ganga að eiga j^essa dygðum prýddu. tignu hefðarmey. Herra Mogens var til nteð það, og svo voru ]:>au gefin saman. Jakob biskup var svo mikill í munni, að hann á- varpaði brúðina á frönsku og brúðgumann á lágþýzku; dáðust boðsgestirnir mjög að ]d\ í, og þó lield eg, að eg hefði getað gert það eins vel og jafnvel betur. Hver veit líka nerna eg fái einhvern tíma bagalinn í Lundi, sem hans náð hefur lofað mér hálft í hvoru; og ef ástkær móðursystir mín vill liðsinna mér í því efni, þá skal eg aldrei ynípra á neinu Jo\ í, sem eg heyrði í skápnum forðum. En þér skiljið, að eg þori að skrifa svona eingöngu vegna þess að eg er svo langt frá stafnum yðar, sem eg bið guð að láta bylja á annarra bökum, en ekki mínu. Þá er nú eftir að skýra frá hl jóðfæraslætt- inum, sem ldjómáði yndislega um salinn, — og veit eg þó að ástkær móðursystir mín kann ekki að meta slíkt. Svo þegar allt var um garð gengið, fór hver til síns heima. En klukkan sex um kvöldið kom hinn setti brúðgumi, herra Mogens, og föruneyti hans aftur upp í höllina, og þar var haldin dýrð- leg veizla, sem eg óverðugur fékk að sitja, og var mér þó skipað neðst á óæðri bekk. Fag- urt var á að líta, jregar vistir voru fram born- ar af ungum aðalsmönnum, og það hefði glatt hjarta yðar stórlega, ef þér hefðuð setið Jiar og notið þjónustu þessara skálka, sem eiga eftir að vaxa, ía hallir og lén og ráðast á bændur og friðsama kaupmenn. En þeir gættu vel sinna starfa, og maturinn var góð- ur. Tuttugu föt voru borin inn í einu, og kallarar gengu á undan í brjóstbrynjum og öðru flúri, sem eg man ekki lengur. Þegar við höfðum étið af öllum lífs og sálar kröft- um, var haldin burtreið mikil á vellintun að haliarbaki, — og finnst mér það ósann- gjarnt, því að eftir góða máltíð er mest þörf á að hvíla sig. Eg var ekki heldur sjálfur við- staddur, eingöngu vegna þess að eg er klerk- legrar stéttar og ekki vegna Jress að fram hjá mér væri gengið. Þess sannmælis má herra Mogens Gjöe njóta, að hann varpaði þrem niðurlenzkum riddurum úr söðli, svo að hin unga drotning vor komst þegar að raun um, að hér eru karlar í krapinu. Svo fórum við að dansa og leiða hefðarmeyjarnar fram og aftur og upp og niður og í hring eftirsöngog hl jóðfæraslætti, Jrangað til klukkan var orð- in tvö um nóttina. Karl prins dansaði svo
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.