Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Page 50

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Page 50
88 DYVEKE N. Kv. in veit ekki, að hverju liún gengur. — Er það satt, að hún sé aðeins fimmtán ára?“ „Já, það er satt,“ svaraði konungur. „En þú rnátt ekki halda, að hún viti ekki að hverju hún gengur, því að sögusmettur og rægirófur hafa fyrir löngu sagt henni frá ást konungsins á Dyveke. Móðir þín hefur hlífzt við að segja þér frá þessu, en Elísabetu er fullkunnugt um að eg legg ást á þig.“ Dyveke liorfði á hann liissa og sorgmædd. „\7eit hún um mig?“ spurði hún, og að ást yðar til mín er ekki kulnuð.“ Konungur kinkaði kolli. „Þá skil eg ekkert í, að hún skuli koma hingað," mælti hún með hægð. — Svo talaði hún ekki meira um það, en vildi um fram állt sjá iandgönguna. Hún lofaði að leynast vel á hak við runna, og Hans Faaborg átti að hafa gát á öllu, því að ganga mátti að því vísu, að fjölmennið, sem þangað kæmi, mundi gera ólæti og uppnám, ef hennar yrði vart. Fimmtudaginn 9. ágúst sátu þau á leyn- um undir runnunum, Dyveke, Edle og Han's Faaborg, og horfðu á, þegar drottning- in steig á land. — Fjarlægðin var meiri en svo, að Dyveke gæti greint andlit drottning- ar, og auk þess var hellirigning. Hans Faa- horg vildi fá liana til að leita húsaskjóls, en hún þvertók fyrir það. Hún sá mannfjöld- ann skipa sér í raðir, og svo gullu við lúðrar úr þeirri átt, þaðan sem konungs var von, — og nú fór eins fyrir Dyveke og við krýning- una í Frúarkirkju. Þegar konungur kom, hafði hún ekki augun af honum. A undan voru kallarar með gyllt belti, klingjandi bjöllur og Ijómandi merkiskildi; þá kom hans náð, klæddur kyrtli, sem glitraði af gulli og perlum, og þar utan yfir var hann í rauðu, skinnbryddu kápunni, sem hann fór aldrei úr, þegar hann var á hestbaki. Hann reið ágætum graðhesti, og á undan honum voru teymdir fjórir aðrir graðhestar með dýrmætum áklæðum af rósasilki. „Hvað liann er byrstur á svipinn!" mælti Edle. „Það er auðséð, að hann verður þeirri stundu fegnastur, þegar þetta brúðkaup er um garð gengið." Dyveke sá líka, hve byrstur hann var; hún þekkti öll svipbrigði hans og hverja hrukku á enni hans, og hún þóttist viss um, að hún gæti komið honum til að brosa, ef hún værí komin til hans og rnætti strjúka höndum í gegnum hár hans. — Henni virtist konungur líta til sín, og lienni hnykkti við; en svo var ekki, því að hann sneri sér undan og blíndi yfir að Skánar-strönd. Svo seig mannfjöldinn af stað í rigning- unni. Þar voru herrarnir úr ríkisráðinu, biskupar, ábótár, riddarar og' aðalsmenn, yf- ir fjögur hundruð ríðandi manna; á eftir komu Jrær ekkjudrottningin, kjörfurstafrú- in, hirðmeyjarnar og margar aðalsfrúr og jómfrúr, sem óku í viðhafnarvögnum með ijórum hestum fyrir. Það var hræðilegt, hvernig kvenjijóðin var útleikin í öllu stáss- inu, Jjví að vagntjöldin skýldu engan veginn fyrir regninu. Edle hló og benti á surnar hefðarfrúrnar, sem voru sérstaklega illa staddar. „Ef drottningin er veik, þá hressist hún ekki við bleytuna," sagði Hans Faaborg. Dyveke leit aftur niður á ströndina, þar sem brúðarfylgdin mjakaðist af'stað. Hún sá Eirík Walkendorf á hestbaki og Lage Urne biskup, sem átti að halda móttökuræðuna, og nú úði alls staðar og grúði af fólki, svo að ekki var unnt að átta sig á hverju eina. Edle teygði sig fram úr runnunum og starði; hún var að svipast eftir Torben Oxe, því að hún varð ástfangnari í honum með degi hverj- um, — og hún kom auga á hann á meðal hirðmannanna. Henni tókst jafnvel að fá hann til að líta í áttina til felustaðar þeirra og veifa með hendinni. En Hans Faaborg kippti henni til baka og hélt aftur af henni. „Gætið yðar nú, jómfrú Edle,“ mælti hann; „nú styttir upp rétt um leið og Jaau mætast niðri á veginum." Svo var sem hann sagði. Rétt í sama

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.