Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Side 51

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Side 51
N. Kv. DYVEKE 89 mund, sem.brúðurin sté út úr vagni sínum og ekkjudrottningin og kjörfurstafrúin, steinhætti að rigna. „Nei, horfið á,“ sagði Edle og teygði sig fram, og þá beindu þau Dyveke og ritarinn allri 'sinni atliygli að því, sem fram var að fara. Brúðurinn stóð á ábreiðu af rósasilki, sem breidd var á jörðina; við hlið liennar stóð ekkjudrottningin, en andspænis þeim stóð konungur og systir hans, kjörfurstafrú- in. Hringinn í kring þyrptist svo fylgdarlið- ið, eftir tign og metorðum. Lage Urne bisk- up gekk frarn og bauð brúðina velkomna með latneskri ræðu, sem mun hafa verið ein- staklega hjartnæm. En drottningin var svo máttfarin, að hún gat ekki staðið ræðuna á enda, svo að æðsta hirðmær hennar settist á jörðina og lét hana hvíla í kjöltu sér, meðan hún náföl hlustaði á orð biskupsins, sem hún skildi ekki, en voru á þá leið, að kon- ungur og þjóðin hefðu þráð mjög komu hénnar og óskuðu þess áf hjarta, að lieill og hamingja fylgdu henni í hverju fótmáli. Meðan á ræðu biskupsins stóð, dimrndi aft- ur í lofti, svo að auðséð var, að aftur mundi fara að rigna. Hann horfði upp í skýin og því næst á drottninguna, sem var ómegini nær í kjöltu hirðmeyjarinnar, og sló botn- inn í ræðuna með þeim orðum, að regnið væri teikn og fyrirboði gróandans og frjó- seminnar. ..Drottning'in er að deyja!“ mælti Dyveke. En þá fóru allir að hypja sig, stíga á hést- bak og inn í vagnana, og hersingin fór af stað til borgarinnar. Konungur og biskup- arnir voru í fararbroddi; næst var brúðurin og herramennirnir frá Búrgunda. en á eftir voru ekkjudrottningin og kjörfurstafrúin með fylgdarliði sínu. Regnið hellti'st úr loft- inu. og mannfjöldinn, sem á eftir var, valt á ýmsa vegu með ópum og ærslum. Edle hljóp í spretti gegnum eplagarðinn ug inn í húsið. en Dyveke fór sér hægt, hvemig sem rigndi. „En hvað drottningin var veik,“ mælti hún. „Það er fall'egt af yður að liugsa utn liana," mælti Hans Faaborg. ,,Því skyldi eg ekki gera það?“ svaraði hún. „Eg ei' verri við hana en hún við mig.“ Hún spurði. hvort hjónavígslan ætti að fara fram sama dag, en ritarinn sagði, að liún og krýning drottningar færi fram sunnudaginn næsta. Svo spurði hann, hvort hún vildi horfa áathöfnina; liann gæti vafa- laust stillt svo tii, þó að þessi hátíðlega at- höfn færi ekki fram í Frúarkirkju, vegna veikinda drottningar, heldur í einum hall- arsalnum; samt mætti jómfrii Edle ekki vera með þeim, því að ef hún kæmi upp um þau, þá væri verr farið en heima setið. „Nei, nei,“ sagði hún, „eg vil ekki horfa á það. Það væri afleitt, ef drottningin sæi mig, eins heilsuhraust og hamingjusöm og eg er, vegna ástar eiginmanns hennar." Sigbrit kom heim um leið og þau. Hún hafði dulbúið sig sem bóndakonu og verið niður við veginn til þess að sjá alla dýrðina á stuttu færi. Hana langaði til aðsjá andlitið á drottningunni. Hans Faaborg spurði hana liæversklega, hvernig henni hefði líkað. Hún þeytti af sér rennv'otum spjörunum og spyrnti þeim út í horn. „Ojæja,“ svaraði hún, „það fór vel á því; en hætt er við, að einhver kvefist eftir aðra eins brúðarför. Eg held eg geri ekki annað þarfara en að fara fram og hita brjóst-te, svo að það sé tilbúið, þegar hans náð kemur.“ Hans Faaborg reið til borgarinnar. Edle var fýld yfir því að vera ekki með við há- tíðahöldin og var að gylla það fyrir sér, að ef Torben Oxe bæði hennar, þá yrði hún að fara frá þeim mæðgum. Dyveke sat við gluggann í herbergi sínu og starði út í rign- inguna. Þegar skyggja tók og nokkru síðar en vant var, reið Kristján konungur út um Austur- hlið. Hann staldraði við utan hliðsins og

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.