Nýjar kvöldvökur - 01.10.1959, Blaðsíða 22
140
N. Kv.
Björn R,. Árnason:
$ökku- O0 Sjfðro-Hvorfs-flettir
Á ofanverðri 18. öld og til ársins 1810,
bjuggu á Sökku í Svarfaðardal hjónin Jón
Jónsson og kona hans, Þórunn Þorvaldsdótt-
ir. Okunn er mér ætt Jóns Jónssonar, en Þór-
unn var einn af mörgum afkomendum Þor-
valdar Hríseyings Gunnlaugssonar, er lengi
íraman af ævinni bjó í Hrísey, og eftir það
við hana kenndur, en síðast hjó hann í
Fagraskógi við Eyjafjörð, og víst er það,
að þar bjó Þorvaldur Hríseyingur mann-
talsárið 1703 og þá talinn 99 ára gamall.
Gunnlaugur faðir Þorvaldar drukknaði í
skreiðarfcrð á Grímseyjarsundi og þá ekki
gamull maður.
Þorvaldur Hríseyingur var þríkvæntur og
átti mörg hörn með konum sínum. Er sá ætt-
bálkur mikill, enda víða dreifður og margt
þeirra ættmanna, konur og karlar, verið
og reynzt liæfiléika- og atgervisfólk. Er og
í sögnum að Þorvaldur gamli Hríseyingur
væri um flest hinn mesti garpur. Hin svo-
r
nefnda Krossaætt af Arskógsströnd er ein
grein af ætt Þorvaldar Hríseyings Gunn-
laugssonar, og er stutt frá að segja, að á
síðari tímum hafa risið á leggina meðal
þeirra frænda yfirburðamenn um andlegt
og líkamlegt atgervi, svo sem skáld og rit-
höfundar, hagleiksmenn og srniðir, skip-
rtjórar og sjófaramenn miklir, atorkusamir
bændur og konur og karlar, búið lífsþrótti
miklum, einhug og þori.
Ekki er mér kunnugt um, hve mörg voru
börn' þeirra Sökku-hjóna, Jóns og Þórunnar,
En fyrir víst voru 2 synir þeirra, er upp
komust, Rögnvaldur og Halldór.
Rögnvaldur bjó á Sökku eftir foreldra
sína. Kona h^ns var Sigurlaug Jónsdóttir.
Sonur þ'eirra var Jóhann Rögnvaldsson, er
mjög lengi bjó á Sökku, eða um 40 ára
skeið. Hann átti Ástríði Hallgrímsdóttur frá
Hámundarstöðum. Nokkur voru börn þeirra,
þó ekki vrðu öll gömul. Eitt þeirra var Sig-
urlaug, er átti fyrst Þorvald á Krossum á
Árskógsströnd og síðar Gunnlaug Jónsson,
skipstjóra, báðir bændur á Krossum. Jó-
hann Rögnvaldsson og kona hans Ástríður
Hallgrímsdóttir, voru ætíð talin í röð helztu
búenda í Svarfaðardal.
lÉess er hér að framan getið, að Rögn-
valdur Jónsson'byggi á Sökku eftir þau for-
eldra sína, Jón Jónsson og Þórunni Þor-
valdsdóttur Halldór Jónsson, bróðir Rögn-
valdar, virðist hafa byrjað búskap á Sökku,
en aðeins 1—2 ár. Árið 1820 kemur hann
að Bakka í Svarfaðardal og þá kvæntur
Helgu Björnsdóttur frá Syðra-Hvarfi. Hall-
dór og Helga bjuggu á Bakka aðeins um 5
ára skeið, eða til ársins 1825. Þá mun Hall-
dór hafa látizt og þá kornungur að aldri.
Ekki er þeim sem þetta ritar í lófa lagið að
íá vitneskju um persónu eða manngildi Hall-
dórs Jónssonar. Saga þeirra, er ungir deyja,
er ælíð stutt. Þeir hafa um skamma ævi ekki
íengið tækifæri til þess að leysa af höndum
mikil eða erfið viðfangsefni. En á einhverj-
um stað hefi ég séð Halldór nefndan „lista-