Nýjar kvöldvökur - 01.04.1961, Page 13
N. Kv.
ÍSLENZKIR ÆTTSTUÐLAR |
59
Enn hafa sennilega verið börn þessa Þor-
hels, þótt ekki séu þau nefnd í niðjatalinu:
zdd) Guðmundur Þorkelsson, sem 1703
býr 48 ára í Hvítanesi, ókv.
zee) Kristin Þorkelsdóttir, 51 árs 1703,
gift Þorláki í Hvítanesi Jónssyni.
zff) Guðrún Þorkelsdóttir, sem 1703 er
54 ára vinnukona í Borgarey, kann að vera
systir Halldóru, sem þar býr.
zgg) Anna Þorkelsdóttir, sem 1703 býr 50
ára í Reykjafirði í Vatnsfjarðarsveit, kann
að vera dóttir þessa Þorkels. Anna átti barn
tneð Hannesi bartskera í Reykjafirði Gunn-
laugssyni pr. á Stað á Reykjanesi Snorrason-
ar5^) 0g giftist honum. Hún er skakkt til
ættar færð á p. 2892 í ættartölum Espholins,
og kann það, sem hér er sagt að vera hið
rétta. Hjá henni er 1703 m. a. Þóra Kára-
dóttir 22 ára, sem kann að vera dóttir Guð-
finnu í Hvítanesi.
Um önnur böm Jóns Bjarnasonar og Járn-
gerðar er óljóst í ættatölum Espholins og
einnig um Stein Vigfússon.
yb) Bjami Vigfússon dó barnalaus.54)
yc) Hallbjörg Vigfúsdóttir dó barnlaus.55)
yd) Guðrún Vigfúsdóttir, f. ca. 1540—
1550, átti Ara í Geirþjófsfjarðarbotni. Dæt-
ur þeirra eru taldar Guðrúnar tvær, vænt-
anlega fæddar um 1570—1580.
yaa) Guðrún Aradóttir átti Tómas.
ybb) Guðrún önnur Aradóttir átti Grím.
Þeirra barn:
yaaa) Skúli Grimsson, væntanlega fæddur
nálægt 1600.
ye) Guðrún önnur Vigfúsdóttir Helga-
sonar, væntanlega fædd um 1540—1550, er
sögð hafa átt Svart á Látrum. Þ. sonur:
yaa) Þórður Svartsson, líkl. f. um 1570—
1580. Hans sonur:
yaaa) Svartur Þórðarson. í ættartölum
Espholins p. 5432 er hann talinn hafa átt
Guðrúnu Steinsdóttur Þorvaldssonar og
lugiríðar Björnsdóttur, en það er rangt, og
53) Espholin, ættatölur, p. 955.
54) Espholin, ættatölur, p. 5431.
55) Espholin, ættatölur, p. 5433.
var Svartur maður þeirrar Guðrúnar Guð-
mundsson.
ybb) Jón Svartsson, væntanlega fæddur
um 1570—1580, en kann að vera fæddur
litlu síðar, átti að sögn Espholins Sigríði
Þorsteinsdóttur á Stökkum Ormssonar
Erlingssonar, og er það líklega rétt, sbr.
Biskupasögur Bókmenntafélagsins II. b.,
bls. 299. Dóttir þeirra var með vissu Her-
gerður, en Ólafur og Helgi eru einnig tald-
ir synir Sigríðar og þá eflaust einnig Jóns.50)
yaaa) Hergerður Jónsdóttir er 62 ára
1703 gift Jóni í Tungu í Rauðasandshreppi
Guðmundssyni.
ybbb) Helgi Jónsson er sennilega dáinn
1703. Synir lians eru að líkindum Jón eldri
og Svartur, sem búa í Hænuvík í Rauða-
sandshreppi 1703 og Jón yngri sem þá býr
á Sellátranesi.
yf) Guðrún þriðja Vigfúsdóttir Helgason-
ar er talin. Hún er sögð hafa verið hjá Ormi
Erlingssyni og hafa átt mörg börn, að því
er virðist óskilgetin, eftir orðalagi niðjatals-
ins að dæma: „átti mörg börn, eignaðist síð-
an Runólf“. Með Runólfi manni sínum er
hún sögð hafa átt synina Jón og Þorvarð.
yaa) Jón Runólfsson, væntanlega fæddur
um 1570—1580. Hans sonur:
yaaa) Snœbiörn Jónsson, væntanlega f.
um 1600-1620.
ybb) Þoruarður Runólfsson. Hans sonur:
yaaa) Snjólfur á Strönd57) Þomarðsson.
xbbb. Oddur Helgason.
Hans er fyrst getið í skjölum sem dóms-
manns í Tungu í Höfn 30. sept. 1532.5s)
6. október 1533 gekk á Hvestuþingi í
Arnarfirði dómur um mannslag það, er
Oddur Helgason ófyrirsynju í hel sló Sturla
heitinn Jónsson. Oddur var dæmdur frið-
helgur og ferjandi til kóngsins náða.59)
Á Alþingi 1544 samþykkir hann gern-
56) Espholin, ættalölur, p. 5361 og 5432.
57) Espholin, ættatölur, p. 5432.
58) D. I. IX, bls. 629.
59) D. I. XI, bls. 111-112.