Nýjar kvöldvökur - 01.04.1961, Síða 19

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1961, Síða 19
ÞORMÓÐUR SVEINSSON: Síðasta orrustan á íslandi 700 ára minning Hinn 19. júlí 1955 voru réttar 7 aldir liðnar frá því að síðasta orrustan var háð hér á landi, þar sem verulegt manntjón varð. En það var bardaginn á Þveráreyrum, hin- um ytri, í Eyjafirði. Liðsafnaður, og nokkur átök, átti sér að vísu stað í landi voru eftir þetta, og allt fram að siðaskiptum a. m. k., en blóðsút- hellingar urðu engar þar, svo að orð sé á gerandi. Skal nú þessi atburður rifjaður ofurlítið upp, við þessi tímamót, og má vera, að einhverjum þyki nokkur fróðleikur í því. Og þó að hér væri að vísu um ljótan leik að ræða, þá má þó minnast þess, að hingað, og ekki lengra, var haldið þeirri skálmöld sem hér hafði skapazt og staðið all langa stund. Heimildirnar eru að sjálfsögðu hin uierku og sannfróðu 13. aldar rit. Er þá rétt að hefja frásögnina á því, að Eynna lítillega þá menn sem fyrir þeim flokkum stóðu, er áttust þama við. Fyrirliðar annars þeirra, og þess, sem telja verður að hafi sótt á, voru þrír: Þor- varður Þórarinsson frá Valþjófsstað, og var hann aðalsóknaraðilinn, Þorgils Böðvarsson »skarði“ frá Stað á Ölduhrygg, nú Staða- stað, og Sturla Þórðarson, hinn merki sagna- fitari, einnig ættaður frá Stað, enda föður- bróðir Þorgils. Þorvarður var af merkum skaftfellskum °g austfirzkum ættum kominn, og héldu þeir frændur sig fyrst í stað utan við róst- Ur þeirra tíma, en drógust þó síðar inn í þær. Hann hafði nú bú að Hofi í Vopna- fixði, er talinn mikilhæfur maður, vopn- finaur svo að af bar, — en á þeim tímum var það talið mönnum til gildis að kunna að beita vopnum, — en hafði ekki alþýðuhylli, að því er virðist. — Hinir tveir voru ná- komnir Sturlungum, en þó ólíkir menn að ýmsu leyti. Þorgils var þrályndur maður og ærið skapmikill, en þó stundum vinsæll af undirmönnum sínum, enda veitull ef hann komst yfir fé og völd. Hann hafðist nú við í nánd við æskustöðvar sínar vestra. Sturla mun að eðlisfari hafa verið friðsamur mað- ur, og að mestu laus við grimmd þeirra tíma, enda þótt atvikin höguðu því svo, að hann tók þátt í flestum stærri deilum, og mörgum vígamótum, er gerðust hér um hans daga, en slapp lítt meiddur í gegnum það allt, til ómetanlegs happs fyrir bók- menntir vorar. Hann mun nú hafa verið búsettur í Hítardal, fremur en Staðarhóli í Saurbæ, en á báðum þeim stöðum átti hann bú. Fyrir hinum flokknum voru þeir Eyjólf- ur „ofsi“ Þorsteinsson frá Hvammi í Vatns- dal, og Hrafn Oddsson frá Söndum í Dýra- firði, hvorir tveggja vaskir menn og vel gefnir, framgjarnir og all vanir vopnagný. Voru þeir svilar, tengdasynir Sturlu Sig- hvatssonar, sem, ásamt bræðrum sínum þremur og föður, féll fyrir liðssveitum Gissurar Þorvaldssonar og Kolbeins unga, á Örlygsstöðum í Skagafirði árið 1238. Eyjólfur hafði um stund farið með stjórn mála í Skagafirði, í umboði Þórðar kakala, áður en Gissur Þorvaldsson tók völd þar veturinn 1252—3, en þá vísaði hann Eyjólfi úr héraðinu. Fluttist hann þá að Möðru- völlum í Hörgárdal. — Upp af þessum at- burðum, aðallega, kviknaði Flugumýrar- brenna haustið 1253, en Eyjólfur Þorsteins- son var fremstur þeirra manna sem kyntu það bál. Mun hann hafa verið geðríkur

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.