Sjómannadagsblaðið - 03.06.1945, Síða 33
Einn salurinn í sjóminiasafninu
--- ■ i
l*r
in? 11 43
Sióminjasafnið í Gaufaborg
Það var stofnsett 1913 af siglingasamtökunum
þar í borginni. Brátt söfnuðust svo margir minja-
gripir, að nauðsynlegt varð að kjósa sérstaka sjó-
minjasafnsnefnd til að sjá þeim borgið, og þar
með var grundvöllurinn lagður undir hið merki-
lega safn.
Að hægt var að ráðast í að reisa hina miklu
byggingu, var mest að þakka höfðinglegum gjöf-
um tveggja manna. Werner Lundquist hét sá, er
reið á vaðið með því að gefa í þessu skyni kr.
100.000. Annar Svíi, Dan Broström, gaf strax árið
eftir ekki minna en eina milljón króna til bygg-
ingarinnar. En stjórn borgarinnar kórónaði verkið
með því að gefa ágæta lóð undir hið dýrmæta
safn.
Hinni miklu byggingu var að fullu lokið 1933
og opnuð fyrir almenning með hátíðlegri athöfn
af sænska konunginum, sem við það tækifæri af-
henti íbúum borgarinnar hana til eignar.
Rétt við bygginguna er glæsilegt minnismerki
yfir sænska sjómenn, er létu lífið í fyrri heims-
styrjöld. Er þetta 200 feta há súla, en innan í
súlunni er rafmagnslyfta til að flytja þá, sem
vilja skygnast um af brún súlunnar.
Hvenær eignumst vér Islendingar vort eigið
sjóminjasafn ásamt minnismerki yfir íslenzka sjó-
menn, er hafa farizt? Sjómannadagsráðið hefur
hafið baráttuna fyrir þessu máli með stofnun
sjóminjasafnsnefndar og með því að helga því
allan ágóða af veðmálum í sambandi við kapp-
róðra Sjómannadagsins. Sjómannadagsráðið hefur
bundið hærri vonir við væntanlegt sjóminjasafn
en að gera það að einhverri deild eða niðursetn-
ingi í öðru safni.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 13