Sjómannadagsblaðið - 03.06.1945, Qupperneq 53
Svífðu seglum þöndum
Yachtklúbbsins að koma upp við Skerjafjörð, sem
við álítum beztan stað, sem völ er á hér nær-
lendis, bækistöð fyrir báta félagsmanna.
Einn þáttur starfsemi siglinigaklúbba og vafa-
laust sá, er stuðlað hefur mest að vexti þeirra,
eru kappsiglingar. Bátar þeir, sem félagsmenn
ei'ga nú, eru svo sundurleitir, sem mest má vera;
kappsiglingar slíkra báta verða að fara fram með
forgjafatilhögun, en það er mjög erfitt að ákveða
forgjöf þegar bátarnir eru eins ólíkir og raun er
á. Til þess að iosna við erfiðleikana á að ákveða
forgjöf, sem oft vill Valda óánægju keppenda,
hafa sprottið upp víða um heim flokkar báta,
sem eru að öllu leyti eins (One-Design). Á slí'k-
um bá'tum fer eingöngu eftir siglingaleikni og
hirðusemi áhafnarinnar, hvort hún sigrar eða
ekki.
Bátaflokkar þessir eru mjög margir, árlega
bætast ahtaf einhverjir nýir við, en fáir öðlast
mikið fylgi. Þessir bátar hafa flestir komið frá
Ameríku og breiðst þaðan út. Þeir eru til í öll-
um stærðum, t. d. „Frostbite“ (llVz fet), „Snipe“
(15V2 fet), „Star“ (22xk fet) svo og margir aðrir
af svipaðri stærð og stærri. „Snipe“-flokburinn
er útbreiddastur allra, „Star“ er einn af bátum
þeim, er keppa í Olympisku leikjunum og hefur
nýlega verið valinn sem æfingabátur fyrir sjó-
liða í sænska flotanum.
Það er ætlun Yachtklúbbsins að afla sér ein-
hverra báta af þessum flokkum, annaðhvort sem
eign félagsins eða einstakra félagsmanna og er
það seinna vafalaust heppilegra til þess að hirða
þeirra verði sem bezt.
Vonum við að þess verði ekki langt að bíða,
að kappsiglingar hefjist á Skerjafirði til þess að
vei'ta reykvískum æskulýð holla og skemmtilega
daégrastyttingu.
Hörður Jónsson.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 33