Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Page 9
SjómannadagsblaöiÖ
Ritstjdrar: Gudmundur H. Oddsson og Jónas Gu&mundsson
Pétur Sigurðsson
Horft um öxl
og
fram a við
I síðasta tölublaði Sjómanna-
dagsblaðsins skrifaði ég um skipu-
lagsmál sjómannasamtakanna og
viðskipti þeirra sín á milli og við
önnur launþegasamtök. I þessari
sömu grein ræddi ég einnig um for-
göngu ASÍ er þeir réðu til sín
menntaðan hagfræðing til starfa.
M.a. sagði ég í grein þessari eftirfar-
andi einkaskoðanir mínar:
„Nokkuð má marka þýðingu
traustra og faglegra upplýsinga á
því, að líkast er, sem þeir sem engin
kynni vildu hafa af raunveruleikan-
um í ástandi efnahagsmála, felldu
þá samninga sem nefnd ASÍ hafði
gert, en þeir sem til vanda málanna
þekktu samþykktu þá.
Þessi langi formáli er ritaður til að
undirstrika það ástand sem ríkir
meðal heildarsamtaka sjómanna og
sviði kjarabaráttunnar, sem margan
hátt hefur sannast á síðustu missir-
um.
Skorturinn á samstarfi, þörfin á
þekkingu grundvallaratriða og
einkabarátta þeirra, sem hvor öðr-
um vilja ráða, en ættu að hvíla sig
allir, þótt aldurinn einn segi ekki
alla sögu. Þetta eru nokkur dæmi
sem stéttarsamtök sjómanna eiga á
næstunni að taka alvarlega til at-
hugunar.“
Því miður verður ekki annað séð,
en að þessar skoðanir mínar hafi á
liðnu ári enn einu sinni reynst vera
staðreynd.
Það ástand sem skapast hefur í
samningamálum sjómanna sannar
áþreifanlega að full þörf er á sterkari
sameiginlegum samtökum allra
samningshafa úr röðum sjómanna
og jafnhliða handsal ákveðinna
réttinda minnstu eininganna til
heildarforystu t.d. samninganefnd-
ar.
Ef núverandi kerfi verður áfram
við lýði er um að ræða skæruhern-
aðarfyrirkomulag einstakra smá-
hópa sem oftar skjóta í kross en að
sameiginlegu marki. Með barnaleg-
an sjálfsþótta í samtökum okkar og
útbreiðslu hans erum við aðeins að
skaða stétt okkar og samtök.
Sjómenn eru aðeins lítill hluti
þeirra fjölmörgu starfshópa sem
land þetta byggja.
Með rökum, ekki aðeins þeim
launalegu, heldur einnig með stað-
reyndum um vinnutímaálag, hættu
í starfi og menntunarkröfum, bók-
legum og verklegum getum við
staðið að kröfum okkar gegn hverj-
um sem er. Og ef við getum þetta út
á við eigum við einnig að geta það
inn á við því innbyrðis skipting á
ekki að vera neitt vandamál. Því
miður var á sínum tíma eyðilögð sú
mikla vinna sem þá hafði verið#sett í
starfsmatið á verslunarflotanum.
Líklega að mestu vegna vanþekk-
ingar og misskilnings, en það sem þá
var reynt var þá gert í fyrsta sinn hér
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 1