Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Síða 25

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Síða 25
Félagsheimilið FESTI hefur gerbreytt allri aðstöðu til félagsstarfsemi í bænum. Myndin er tekin í skoðunarferð á ráðstefnu Sambands íslenzkra sveitarfélaga í nóvember 1972. (Ljósm. Gunnar G. Vigfússon). ársins 1936, að hluti af Krísuvikur- landi var lagður undir Hafnarfjarð- arbæ. Sögur herma, að í öndverðu hafi helztu jarðir í hreppnum verið Staður, Húsatóftir, Járngerðarstaðir og Hraun. Með nýjum og nýjum kynslóðum í aldanna rás skiptust heimajarðirnar, og bændum, þ.e.a.s. jarðeigendum, fjölgaði, og jarðir urðu fleiri og smærri. Einnig hafa jarðirnar gengið kaupum og sölum, ýmist verið konungs-, kirkju- og síð- ar ríkisjarðir eða bændajarðir. Nú eru lóðir og lendur í hreppnum ým- ist í eigu ríkis, sveitarfélags eða hinna ýmsu landeigenda. Frá landnámstíð og allt framá þessa öld var íbúunum gjarnan skipt eftir því, hvort þeir áttu land eða voru landlausir. Þeir, sem land áttu, nefndust bændur, en hinir þurra- búðar- eða tómthúsmenn. Eftir að þéttbýliskjarnar fóru að myndast fyrir alvöru, leið þessi skilgreining undir lok. Byggðin var frá upphafi í þremur hverfum, eins og oft hefur verið að vikið. Risu þessi hverfi umhverfis lendingarstaðina. Tók enginn lend- ingarstaðurinn öðrum fram, svo að nokkra úrslitaþýðingu hefði fyrir byggðaþróunina. Ibúafjöldinn hef- ur þvi' ráðizt af öðrum ástæðum, s.s. framtaki fólksins, húsakosti o.s.frv. Árið 1890 er tekið manntal í Staðarprestakalli, þ.e.a.s. í Grinda- víkurhreppi að Krísuvik undanskil- inni. Þá eru samtals 302 ibúar í sókninni. I Staðarhverfi búa þá 63 íbúar, í Járngerðarstaðahverfi 145 og í Þorkötlustaðahverfi 94 íbúar. Með byggingu hafnar í Hópinu í Járngerðarstaðahverfi skapast fyrst þær breyttu aðstæður, sem valda því, að útgerð leggst með öllu niður frá Staðar- og Þorkötlustaðahverf- unum og hefur fljótlega þau áhrif, að byggðin dregst saman á þessum stöðum og þó sérstaklega i Staðar- hverfinu, sem er fjær. Enda fór svo, að Staðarhverfið fór fljótlega í eyði. Lengst var búið á Stað eða til ársins 1964. Örlög Þorkötlustaðahverfis urðu nokkuð á annan veg. Byggð hefur að vísu ekki aukizt síðan höfnin var gerð, en heldur ekki minnkað verulega, sumpart mun þetta stafa af tiltölulega lítilli fjar- lægð frá höfninni og sumpart af því, að hraðfrystihús var reist þar árið 1946 og veitti mikla atvinnu, ein- mitt um sama leyti og róðrar lögðust niður frá hverfinu sjálfu. Eins og áður er getið, stóðu at- vinnuvegir með nokkrum blóma á fyrstu áratugum þessarar aldar og fjölgaði íbúunum þá nokkuð. Árið 1900 eru íbúarnir 357, og árið 1938 eru þeir orðnir 553. Á stríðsárunum kom svo afturkippurinn, sem áður er lýst, svo að árið 1945 er íbúatalan komin niður í 489. Það er svo ekki fyrr en 1950 sem íbúatölunni frá 1938 er aftur náð eða því sem næst. Eftir það heldur fjölgunin áfram jafnt og þétt, þannig að árið 1960 eru íbúarnir 734, fimm árum síðar eru þeir orðnir 913, og árið 1968 fara þeir yfir 1000. Árið 1970 voru þeir 1169, hinn 1. desember 1973 voru Grindvíkingar 1456, og nú, hinn 1. desember 1974 munu þeir vera alveg um 1600. Einsog sést af framansögðu fer íbúatala Grindavíkur nú ört vax- andi og aðkomumenn eru þar margir svo að segja allt árið, því höfnin er mikið notuð til fisklönd- unar á öllum árstímum, skip vilja spara sér siglingu til Faxaflóahafna með fisk sem fenginn er fyrir sunnan Reykjanes. Sjómannadagurinn hefur ávallt verið hátíðisdagur í Grindavík. Það er ekki nein sérstök tilviljun að Sjó- mannadagsblaðið minnist Grind- víkinga sérstaklega. Það hefur staðið til lengi. Grindvíkingar hafa haldið uppi merki sannrar sjómennsku í þessu landi og ritnefndin sendir þeim sérstakar árnaðaróskir þenrian dag. SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 17
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.