Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Side 29
vera fyrir báta, sem stunda Norður-
sjávarveiðar. Við þurfum nefnilega
líka að lifa, sem erum á minni bát-
unum. Þar að auki kæmu ekki
margar tunnur í hlut Grindavíkur,
ef aðeins Norðursjávarbátarnir
fengju leyfi til að veiða síld.
Frá síðasta sjómannadegi hafa
verið keyptir nokkrir bátar til
Grindavíkur og óska ég eigendum
þeirra til hamingju, og farsældar í
starfi. Einn bátur glataðist í hafið,
en giftusamlega tókst til með um
björgun manna og þökkum við guði
fyrir.
Eins og flestir vita hefur sjó-
mannadeildin staðið í byggingar-
framkvæmdum á sumarbústað í
Hraunkotslandi í Grímsnesi og er nú
framkvæmdum svo gott sem lokið.
Sumarbústaðurinn er glæsilegt hús,
enda verður byggingakostnaðurinn
nálægt tveimur milljónum með
innbúi. Sumarbústaðanefndin fór
austur í gær til eftirlits og áætla
hvenær hægt væri að byrja að leigja
bústaðinn út, og ákváðum við að
auglýsa eftir dvöl í bústaðnum í dag.
Meiningin er, að þeir sem komast að
í sumar, fái vikudvöl í einu, og væri
æskilegt, að þeir, sem sækja um, taki
fram hvenær sumarins þeir óska
helst að komast að. Það kom í okkar
hlut að skíra eina götu í hverfinu og
svo auðvitað bústaðinn okkar og
skal gatan enda á sund og bústaðar-
nafnið á vör. Var þá ekki óeðlilegt að
okkur dytti í hug þekktustu kvenna-
nöfn í Grindavik. Það er jú
kvennaár núna. Þess vegna heitir
bústaðurinn Þórkötluvör, og gatan
Járngerðarsund, og vonum við að
sem flestir verði sammála okkur með
þessar nafngiftir.
Skoðun og viðgerðir
gúmmíbáta allt árið.
Kókosdreglar og ódýr
teppi fyrirliggjandi.
GÚMMfBÁTAÞJÓNUSTAN
Grandagarði 13 - Sími 14010
Drifkeðjur og
keðjuhjói
Flestar stærðir ávallt
fyrirliggjandi.
Verðið mjög
hagstætt.
LANDSSMIÐJAN
SÍMI 20680
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 21