Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Side 33

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Side 33
kannski mál að fara úr stígvélun- um!“ „Hann etur altíð og er þó altíð soltinn, segir meistari, Jón.“ , Já, það á víst við þarna.“ Svo féllu orðaskiptin niður. Ég fór að hugsa um Gvend. Kappið í hon- um í þessum túr hafði gengið vit- firringu næst, hafði oft vel verið, það sem af var úthaldinu, en aldrei neitt ámóta og þessi ósköp. Sýndist næst- um vera svo, að einhver annarleg ástríða ýtti á kallinn, því ekki þurfti hann að láta svona vegna Litlunnar, hafði alltaf verið hærri en Bjarni, frá því að út var lagt í vetur....Ágirndar bruni? Kannski það, ágirnd vex með eyri hverjum, og nú hafði hann máski séð glóa á silfur með hverjum drætti, sem hann kippti inn — og svo var það eins og ákall: Meira silfur, meira silfur. Annars var hann nú ekki neitt tiltakanlega saman saumaður, ekki eins og ég vissi dæmi til um suma, að þeir tímdu ekki að gefa manni í beitu af steinbítsstirtlu eða leikuloki, — nei, nei. Og svo fór ég ósjálfrátt að rifja það upp fyrir mér, í fáum dráttum, sem ég vissi um Fiski-Gvend: Guðmundur var Þórðarson, mað- ur rúmlega fimmtugur. Hann átti heima á Fagureyri, var bóndasonur vestan úr Hamrafirði, missti ungur foreldra sína og var svo uppalinn á sveit. Iannan við fermingu hafði hann farið að róa á árabát með hús- bónda sínum, sem vildi ekki sleppa honum til sjós. En átján ára hafði hann rifið sig lausan og komizt á skútu, og upp úr því hafði hann einhver ráð með að kaupa sér lausa- mennskubréf, enda reynzt afbrigða fiskinn og kappsamur. Um tvítugt hafði hann drifið sig suður á land rétt fyrir byrjun vetrarvertíðar og tekizt að koma sér í skiprúm á einum kútternum hjá vestfirzkum skip- stjóra. Hann hafði svo verið á vetr- arvertíð syðra á hverju einasta ári nema þrjú þau síðustu, en á skútum vestra vor og sumar. Hann hafði aðeins örsjaldan orðið að láta í minni pokann við fiskidrátt, reynzt ótrúlega þolinn, ekki stærri og þrek- vaxnari maður, og heyrt hafði ég, að hann hefði alltaf ráðið sig næstu vertíð á sama skip og sá, sem hafði reynzt honum eitthvað meiri drátt- armaður, og einungis tvisvar sinn- um hafði það komið fyrir, að maður bæri sigurorð af honum tvö ár í röð. Ég hafði spurt hann, hvaðan þeir tveir kappar hefðu eiginlega verið, sem hefðu verið þeir helvízkir ná- menn að sigra hann, og ég hafði heyrt aðra bera upp fyrir honum þessa spurningu. Hann viðhafði þá ávallt sömu orðin, var talsverð romsa, sem hann virtist hafa æft sig á og lært orði til orðs: „Uss, vertu ekki að spyrja að því arna, ég segi það bara, já. Annar var af Skipaskaga, en hinn var villingur ofan undan jöklunum, sem eru norðan við stóru mýrina þarna á Suðurlandinu, segi það bara, já.“ Svo kom í hann hálfgildings eymd- ar- og hátíðleikahljóð: „Þeir eru nú báðir dánir, vesalingarnir, og var þó annar þeirra 197 pund, en hinn 185 og rétt 50 kvint — og handleggirnir á þeim eins og kvenmannslæri. Þeir gerdu báðir meira en guð hafði ætl- að þeim, — ég segi það bara, já.“ Seinustu orðin voru sögð í hressileg- um róm — og hnykkur á jáinu. Að haustinu, líka að vetrinum, áður en Guðmundur fór til sjós, stundaði hann fuglaveiðar á firðin- um hvern logndag, reytti fuglana sjálfur og hafði fiðrið með sér suður, þegar hann fór á vertíð, en hafði safnað því síðan hann lét af suður- ferðunum, sagðist senda það, þegar hann væri búinn að fylla balla, yrði ódýrara en að mjatla því suður í posasníglum. Annars smíðaði hann á vetrum tóbaksbauka, sem hann seldi, ekki skorna eða búna, en þannig gerða, að þeir tóku mikið, en fóru samt vel í vasa, „sendi þá suð- ur,“ sagði hann, „þykja tilvaldir á trollurunum.“ Hálfþrítugur hafði Guðmundur gengið að eiga stúlku, sem var tíu árum eldri en hann. Hún var eins og fólk flest, nema hvað hún var myndarlegri og duglegri sauma- kona en nokkur önnur á Fagureyri. Þrifin var hún og sparsöm, enda af e\ju- og s.tandsfólki. Ekki hafði ann- að heyrzt en að þeim hjónum hefði fallið mætavel, og víst er um það, að þegar hún fyrir rúmum þremur ár- um lagðist þá legu, sem hún stóð ekki upp úr, fór Guðmundur ekki á vetrarvertíð og ekki á skútu vestra fyrr en eftir sumarmál, en þá var svo komið, að kona hans hvíldi í hinum nýja kirkjugarði á Fagureyri, var þriðja manneskjan, sem þar var jörðuð. Síðan hafði Guðmundur ekki farið á vertíð suður, og ef hann var spurður, hvers vegna hann hefði hætt því, hvort hann væri farinn að linast eða þættist orðinn nógu efnaður, þá var ávallt svarið: „Festist fyrir vestan hérna um vorið — er moldarbingur úti í gardi, sem heldur í mig, — segi það bara, já.;; Svo var þá ekki frekar spurt. Þau hjónin höfðu eignazt tvö börn, son og dóttur. Sonurinn hafði numið sjómannafræði fyrir sunnan og var þar nú á togara, en dóttirin var gift trésmið á Fagureyri. Hjá þeim bjó Guðmundur, hafði eitt herbergi í húsi þeirra, hafði selt sitt, og auk herbergisins hafði hann afnot af lofti yfir smíðastofu tengdasonar síns, en hún var í úthýsi skammt frá íbúðarhúsinu. Guðmundur notaði ekkert tóbak, og ekki drakk hann kaffi, lifði eingöngu á fiski og lifur, kartöflum og graut, meðan hann var til sjós, fór heim með brauðið, syk- urinn og sjörlíkið, sem honum var vegið eftir viðskiptabókinni, — „börnin“, sagði hann, „börnin hans afa, píri í þau.“.En tvisvar á ári drakk hann sig þéttkenndan, — þegar skipin hættu veiðum og á gamlaárskvöld. Mórauði kallinn spurði hann, hvort hann yrði nú ekki að hætta við goggolíuna, þegar bannið skylli á. „Hætti því ekki. Kristur sagdi, að maðurinn lifdi ekki á einum saman þorski, og ég hætti ekki við vatnið frá Kana, segi það bara, já.“ „Hann er áreiðanlega búinn að SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 25

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.