Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Blaðsíða 35

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Blaðsíða 35
svona. Ég held það megi til að fara með hann ofan í.“ En Markús nokkur stýrimaður gerðist til að aftaka það. „Verdur ekkert af því,“ sagði hann. „Hann skal verda að fletja með okkur, ef ekki vakandi, þá sof- andi.“ „En hann getur skorið sig, Marki minn,“ sagði skipstjórinn, „og tvíl- laust eyðileggur hann fiskinn, sem hann fletur.“ En það var bara uppreisnarandi i Mórauða kallinum: „Ef maður sér það, að hann er ekki vel handstyrkur við flatning- una, þá er ekki annað en láta hann eingöngu fletja sína fiska, hann af- kastar varla meiru. Nú, ef hann sker sig, þá hann um það. Hann fær þá kannski lexíu að læra.“ Að svo mæltu rauk Mórauði kall- inn þangað, sem Siggi Jósúa var að ausa sjó í bala, reif af honum pus- una, hellti úr henni, unz eftir var í henni aðeins þriðjungur, gekk síðan að Fiski-Gvendi, þar sem hann var enn að skima og þreifa. „Gvendur!“ murraði hann vonxkulega. Fiski-Gvendur rétti sig upp, og í sömu svipan skvetti Mórauði kall- inn framan í hann úr pusunni. Gvendur tók óskapleg andköf, glennti upp skjáina, skók sig allan og hrópaði: „Ágjöf, bullandi ágjöf, komið versta veður, ég segi það...“ Nú rankaði hann auðsjáanlega það mikið við sér, að hann kom auga á Markús og starði á hann þegjandi. Og Markús mælti: „Það er satt, það er komin bull- andi ágjöf hjá þér, — þú ert nefni- lega farinn að taka á þig freyðandi vitfirringssjói. Áðan fleygdirdu fyrir bord stærsta fiskinum, sem þú dróst í nótt, og núna misstirdu flatnings- hnifinn þinn í sjóinn, varst með hann í kjaftinum, ófétis afglapinn, og það var Dúshnífurinn frægi, sem þú hefur sagt að væri bezta verkfæri, sem í fiskhrygg hefdi komið. En þú munt eiga annan hníf, ef ég þekki þig rétt, bölvaður ei þó beinmark- inn, og nú sækirdu hann og byrjar svo strax að fletja, því annars læt ég, hérna Litli maðurinn, fleygja fisk- unum þínum fram fyrir spil, og þar geta þeir svo úldnað i sólarhitanum í dag.“ Fiski-Gvendur glápti á hann, setti hönd fyrir eyra til að heyra sem bezt, og talaði þó Mórauði kallinn hátt að þessu sinni eins og refsandi yfir- manni sæmdi. Og svo hristi þá Gvendur höfuðið, svo að sjórinn hrökk í dropum af andlitinu, og síð- an sagði hann hraðmæltur: „Þó það væri nú, að ég færi að fletja, ég segi það bara, já. Fiskurinn, — meira í sjónum af sama tæi, hnífurinn, já, hann var frá Dús, ekkert um það, verdur ekki við öllu séð, Marki minn, bara reksturs- kostnaður eins og hjá reiðiriinu, seg-segi það ba-bara....“ Og hann vatt sér við, snaraðist fram i lúkara, sótti þangað splunkunýjan og gljá- fagran flatningshníf, þó eggjaðan, brá honum á loft, svo að sólin glitr- aði á hann, og sagði eins hressilega og hann hefði aldrei á sig lagt vökur: „Iss, sko, ekki lakari þessi, lika frá Dús, skilgetinn bróðir hins, segi það bara, já.“ Og síðan fór hann að fletja, flatti af sínu venjulega kappi og lagi, unz allri flatningu var lokið. Þá var rétt komið að vaktaskiptum, og svo var þá Fiski-Gvendur ekki lengi að vinda sér fram í lúkara. Standandi hrifsaði hann í sig fiskstykki og stóra kartöflu, hristi sig úr sti'gvélunum, reif sig úr hverri spjör og stakk sér inn í yfirkojuna, sem næst var ba- býsunni. „Nú held ég hún velgi þér, Gvensi minn,“ sagði Baldvin kokkur. „Eg ætla nú að fara að brenna kaffilúku á eftir, — því hana vantar eitthvað til að maula, þessa.“ Og hann greip í sveifina á kaffikvörninni, sem hann hafði sett á bekkinn framan við koj- una sína. Að Fiski-Gvendur svaraði? Óekkí, hann var steinsofnaður. ....Nú var komið stillilogn, var ekki til neins að vera að halda í stýristaumana á Maríu þó að maður gerði það. Annars hlaut nú rórtörnin mín að fara að verða búin. Ég virti fyrir mér Selneshlíðina. Hnú, við vorum þá rétt á Höfðatrýninu. Hérna hafði nú stundum þótt ger- legt að fleygja út færi um þetta leyti árs, var verulega upplyftandi að draga hér göngufiskinn, hvítan, ný- runninn sprotafisk, innan um veru- lega vænir drættir — og hvort sem fiskurinn var smár eða stór, lét hann eins og spilvitlaus á önglinum, dýpið heldur ekki yfir tuttugu faðma. Hvað var nú sosum um að vera hjá Mórauða kallinum? Hann skældi sig ógurlega, ranghvolfdi skyggnunum, skotraði þeim sitt á hvað, klóraði sér í hárlubbanum og ók sér öllum. Skrattalega hafði hon- um líkað þetta forsjárleysi hjá hon- um Fiski-Gvendi — til hvers sem það kunni nú að eiga rætur sínar að rekja. Skyldi gamli maðurinn vera að ergja sig yfir því? Nú vék hann sér með hægð að mér og greip stýris- taumana, og svo murraði í honum: „Fardu, Hvítur minn, fram í lúk- aragatið og segdu pyltunum á vagt- inni okkar að koma upp. Vertu ekk- ert að gjalla það, geyið mitt, og biddu þá að hafa hægt um sig. Ég held það sé varla gustuk að vekja þann gvendótta.“ Eg virti stýrimanninn fyrir mér. Nei, ekki gat ég nú séð út úr honum neina bölvun. En hann hlaut þó að ætla að.... „Ætlarðu að láta hala niður?“ „Heyrdirðu ekki, hvað ég var að kommandera?“ murraði hinn kostulegi og til margs vísi yfirmaður. Eg hentist fram eftir dekkinu og stakk höfðinu niður um lúkaragatið: „Stýrimaðurinn biður ykkur á bakborðsvaktinni að koma upp.“ Ég sagði þetta mun lægra en yfirleitt var talað, þegar svona stóð á. Bakbyrðingarnir þrír sátu og sváfu fram á hendur sínar, en þeir litu strax upp, Höski gamli og Jón á Hrynjanda. SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.